Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 234/2014

Nr. 234/2014 4. mars 2014
REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 211/2013 um kröfur varðandi útgáfu vottorða vegna innflutnings til Sambandsins á spírum og fræjum sem ætluð eru til framleiðslu á spírum.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 26. október 2007, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 211/2013 frá 11. mars 2013 um kröfur varðandi útgáfu vottorða vegna innflutnings til Sambandsins á spírum og fræjum sem ætluð eru til framleiðslu á spírum.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 211/2013 er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Matvælastofnun hefur eftirlit samkvæmt 6. gr. laga nr. 93/1995 með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt.

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli.

6. gr.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. mars 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Halldór Runólfsson.

Eggert Ólafsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 6. mars 2014