Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 2. mars 2011 skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 samþykkt breytingar á deiliskipulagi Leirvogstungu frá 2006, síðast breyttu 24. júní 2009. Meginefni breytinganna er að mörk skipulagssvæðisins færast nær Vesturlandsvegi við mislæg gatnamót, lega tengigötu frá gatnamótum inn í hverfið er ákveðin nokkru sunnar en í gildandi skipulagi, sett er inn lóð fyrir leikskóla til bráðabirgða sunnan tengigötunnar og tvær lóðir fyrir atvinnu-/ þjónustustarfsemi norðan hennar. Breytingarnar hafa hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæltu fyrir um og öðlast þær þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 28. apríl 2011, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |