1. gr. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar er heimilt að leggja á sérstakt gjald vegna meðferðar úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði. Árlegt grunngjald vegna sorphirðu, sorpeyðingar og endurvinnslu í Sveitarfélaginu Hornafirði er sem hér segir: Íbúðir: | Einingargjald sorphirðu er | 18.375 kr. | | Einingargjald sorpeyðingar er | 11.550 kr. |
Óski greiðendur eftir stærri/fleiri sorpílátum greiðist viðbótar sorpeyðingargjald í samræmi við ofangreint gjald. Sækja þarf um mismunandi stærð á tunnum fyrir 1. desember ár hvert. Eingöngu er tekið það sorp sem er í sorptunnum. Á hvert frístundahús (sumarbústaðir o.þ.h.) er heimilt að leggja sérstakt gjald vegna sorphirðu og/eða sorpeyðingar. Þar sem sumarbústaðir eru 20 eða fleiri skal leggja á sérstakt gjald fyrir sorphirðu að viðbættu sorpeyðingargjaldi enda verður komið upp gámasvæði við sumarbústaðahverfi með yfir 20 bústöðum eða fleiri yfir mesta ferðamannatímann frá 1. júní – 1. september. Í sumarhúsahverfum með færri en 20 bústaði eru eingöngu lögð á gjöld vegna sorpeyðingar. | Sorphirðugjald þar sem eru fleiri en 20 bústaðir | 2.500 kr. fyrir bústað | | Sorpeyðingargjald | 3.700 kr. |
2. gr. Gjald fyrir sorphirðu og -eyðingu samkvæmt 1. gr. hér að ofan skal innheimt með fasteignagjöldum. 3. gr. Gjaldtaka fyrir úrgang fyrirtækja og rekstur á lögbýlum svo sem búrekstur og önnur matvælaframleiðsla fer fram með eftirtöldum hætti í samræmi við 2. gr. samþykktar um sorphirðu í Sveitarfélaginu Hornafirði og tekur breytingum í samræmi við ákvörðun bæjarstjórnar ár hvert. | Umsýslu og rekstrargjald óháð stærð | 20.000 kr. | | Sorpeyðingargjald fyrirtækja með gám | 9,5 kr./kg | | Sorpeyðingargjald fyrirtækja með ílát | 1.155 kr./m³ |
Fastagjald fyrir sorphirðu fyrirtækja skal innheimta með fasteignagjöldum. Sorphirðuaðili sér um að skrásetja og vigta úrgang frá fyrirtækjum. Sveitarfélagið tekur saman skráð gögn ársfjórðungslega og innheimtir í samræmi við ofangreinda gjaldskrá. Innheimta fer fram með innheimtuseðli og skal fylgja sundurliðun kostnaðar með hverjum innheimtuseðli þar sem fram kemur hvenær ílát/gámar voru tæmdir og hvað þeir vógu mikið í þeim tilfellum sem vigtað er. 4. gr. Fyrirtæki greiða fyrir úrgang sem komið er með til gámaports við áhaldahús eða starfsmenn áhaldahúss ná í heim á bæi. Fyrirtæki greiða fyrir óflokkanlegan úrgang og þann úrgang sem ekki ber úrvinnslugjald. Starfsmaður gámaports ákveður, að fenginni lýsingu úrgangshafa á úrgangi, í hvaða flokk úrgangur fellur skv. neðangreindri gjaldskrá. Án endurgjalds: | Dekk | | Bylgjupappír | | Sléttur pappír | | Mjúkt plast | | Dagblöð | | Tímarit | | Baggaplast | | Endurnýtanlegur húsbúnaður | | Endurnýtanlegur fatnaður | | Annar úrgangur til endurnotkunar |
Óflokkaður úrgangur: | Járn | 1 kr. kg | | Grófur óflokkaður úrgangur 1 | 1.845 kr./m³ | | Blandaður úrgangur 2 | 1.740 kr./m³ | | Timbur (málað, plasthúðað og blandað) | 2.460 kr./m³ | | Timbur (hreint, ekki litað eða fúavarið) | 1.230 kr./m³ | | Lífrænn úrgangur | 13 kr./kg | | Heimilistæki og önnur raftæki | 13 kr./kg |
Spilliefni, mengaður úrgangur o.þ.h. sem úrvinnslugjald er ekki lagt á: | Olíusíur | 100 kr./kg | | Olíuúrgangur s.s. ódælanlegur úrgangur og | | | olíumengaður jarðvegur, tvistur o.fl. | 155 kr./kg | | Lífræn spilliefni með halógenum og/eða brennisteini 3 | 815 kr./kg | | Lífræn spilliefni án halógens og brennisteins 4 | 210 kr./kg | | Málning vatnsblönduð og önnur ótalin eftirlitsskyld spilliefni | 50 kr./kg | | Kvikasilfursmengaður úrgangur | 540 kr./kg | | Oxandi- og gasmyndandi efni | 875 kr./kg | | Ólífræn spilliefni 5 | 310 kr./kg | | Ýmis spilliefni sem þarfnast efnagreiningar 6 | 310 kr./kg | | Umbúðir spilliefnamerktar/spilliefnamengaðar > 100 l | 5.730 kr./kg | | Umbúðir spilliefnamerktar/spilliefnamengaðar < 100 l | 1.435 kr./kg |
__________ 1 Úrgangur sem þarf að flokka og vinna sérstaklega fyrir förgun og aðra meðhöndlun. Sem dæmi: teppi, dýnur, kaðlar, net, húsgögn, jarðvegur, málmar, steinefni og gler. 2 Að mestu úrgangur sem fer ekki í skilgreindan endurvinnsluferil og þarfnast ekki sérstakrar meðhöndlunar fyrir förgun. 3 s.s.ýmis PCB úrgangur 4 Etylenglýkól, frostlögur, prýlenglýkól, ediksýra, lífrænar sýrur, asfalt, amín, lífræn sölt, poýól og tektyl. 5 s.s. brennisteinssýra, saltsýra, fosfórsýra,flúorsýra, krómsýra, málmhreinsisýrur, lútur, basísk, affitunarböð með cyaníði, galvanhúðunarböð, herðisölt, natríum hydroxíð, fljótandi hýpólórít, málmhydroxíðleðja, ólífræn sölt. 6 s.s. lyf, sprautunálar, flugeldar, polyúretan úðabrúsar. 5. gr. Sveitarfélaginu er heimilt að gera sérstaka samninga um móttöku úrgangs og aðra þjónustuþætti, þegar um er að ræða afmarkaðri eða víðtækari þjónustu en gjaldskráin tekur til. Sveitarfélaginu er heimilt að ákveða að veita allt að 3% afslátt af framangreindri gjaldskrá gegn skilvísri greiðslu gjalda skv. gjaldskránni. Ennfremur er sveitarfélaginu heimilt að koma á sérstöku fyrirkomulagi sem miðar að jöfnun flutningsgjalda fyrirtækja m.t.t. staðsetningar fyrirtækja og urðunarstaðar. 6. gr. Gjald fyrir úrgang sem komið er með til urðunar að urðunarstað í Syðra Firði í Lóni er: | Fiskúrgangur | 9,50 kr./kg | | Sláturúrgangur | 9,50 kr./kg | | Seyra | 6,50 kr./kg |
Enginn má losa sorp á urðunarstað sem ekki hefur sérstakan samning við Sveitarfélagið um losun úrgangs á urðunarsvæði sveitarfélagsins. 7. gr. Verði vanskil á greiðslu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari er hægt að innheimta gjöld með fjárnámi hjá úrgangshafa án undangengis dóms, sbr. 4. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og 1. gr. laga nr. 90/1989 um aðför. Gjöld eru tryggð með lögveðsrétti í viðkomandi fasteign tvö ár eftir gjalddaga, sbr. lokamálsgrein 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. 8. gr. Gjaldskrá þessi, er samin og samþykkt af bæjarráði þann 19. janúar 2015 og staðfest af bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar þann 5. febrúar 2015 samkvæmt ákvæðum 25. gr. laga nr. 7/1998. Gjaldskráin tekur gildi við birtingu. Jafnframt fellur úr gildi eldri gjaldskrá nr. 1109/2009. F.h. bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar, 11. febrúar 2015, Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri. |