Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 16. janúar 2008 í samræmi við 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt breytingu á „deiliskipulagi frá Reykjalundarvegi að Húsadal.“ Skipulagsbreytingin varðar lóðina Lerkibyggð 5 (Ásbúð) og felst í því að hún breytist úr einbýlislóð í parhúsalóð, byggingarreitur er lengdur til suðausturs og gerður byggingarreitur fyrir bílskúr í norðurhorni lóðarinnar. Deiliskipulagsbreyting þessi hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 3. mars 2008, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |