Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 598/2010

Nr. 598/2010 16. júlí 2010
REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1261/2008 (að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IFRS-staðal) nr. 2).

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 74/2009, frá 29. maí 2009, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1261/2008 frá 16. desember 2008 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IFRS-staðal) nr. 2.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 1261/2008 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 39/2010, 15. júlí 2010, bls. 709.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 74/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 47/2009, 3. september 2009, bls. 41.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reiknings­skila­staðla, öðlast þegar gildi.

Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 16. júlí 2010.

F. h. r.

Jónína S. Lárusdóttir.

Þóra M. Hjaltested.

B deild - Útgáfud.: 19. júlí 2010