Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 471/2007

Nr. 471/2007 11. maí 2007
AUGLÝSING
um breytingar á deiliskipulagi Leirvogstungu, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 28. mars 2007 í samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt breytingar á deiliskipulagi íbúðarbyggðar í Leirvogstungu. Helstu breytingar eru þær að sett er inn ný lóð fyrir símstöð, lóð nr. 50 við Kvíslartungu er stækkuð til norðurs og gerður byggingarreitur fyrir skýli yfir taðþró, á lóðunum nr. 1-10 og nr. 24 við Leirvogstungu er húsgerð breytt úr tveggja hæða einbýlishúsum í einnar hæðar og nýtingarhlutfall er hækkað á tilteknum lóðum.
Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast það þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 11. maí 2007,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 30. maí 2007