Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 29. janúar 2014 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi ofangreindrar frístundalóðar. Tillagan var grenndarkynnt 19. desember 2013 til 17. janúar 2014 og bárust ekki athugasemdir. Í breytingunni felst að leyfilegt byggingarmagn á lóðinni er aukið til samræmis við ákvæði aðalskipulags og byggingarreitur er stækkaður. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem lög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 19. febrúar 2014, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |