Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1109/2012

Nr. 1109/2012 11. desember 2012
REGLUGERÐ
um menntun, réttindi og skyldur næringarráðgjafa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi.

I. KAFLI

Almenn ákvæði.

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um næringarráðgjafa sem hafa starfsleyfi landlæknis skv. 2. gr.

II. KAFLI

Starfsleyfi.

2. gr.

Starfsheiti.

Rétt til að kalla sig næringarráðgjafa og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur til þess leyfi landlæknis.

3. gr.

Skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis.

Leyfi skv. 2. gr. má veita þeim sem lokið hafa BS-prófi í næringarfræði og a.m.k. eins árs framhaldsnámi í næringarráðgjöf, þar sem hluti náms er starfsmenntun á sjúkrahúsi eða heilbrigðisstofnun, frá háskóla sem viðurkenndur er af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað.

Einnig má veita starfsleyfi á grundvelli menntunar frá ríki innan Evrópska efnahags­svæðisins (EES) og Sviss. Um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi næringar­ráðgjafa sem uppfyllir skilyrði tilskipunar 2005/36/EB, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, með síðari breytingum, fer samkvæmt reglugerð um viðurkenn­ingu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum, nr. 461/2011.

Þá er heimilt að veita starfsleyfi þeim sem lokið hafa sambærilegu prófi frá mennta­stofnun í ríki utan EES eða Sviss sem viðurkennd er sem slík af heilbrigðis­yfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað.

Umsækjandi um starfsleyfi sem næringarráðgjafi, skv. 2. gr., frá ríki utan EES og Sviss sem Ísland hefur ekki samið við um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi skal meðal annars leggja fram gögn um ríkisfang, innihald náms og námslengd, ásamt prófskírteini, starfsleyfi ef starfsgreinin er löggilt í því landi sem umsækjandi kemur frá, fyrirhuguð störf hér á landi svo og önnur gögn og vottorð sem landlæknir telur nauðsynleg vegna útgáfu starfsleyfis.

Áður en umsókn um starfsleyfi er tekin til efnislegrar meðferðar þarf að liggja fyrir eftir atvikum staðfest afrit umsóknar um atvinnu- og dvalarleyfi ásamt undirrituðum ráðn­ingar­samningi.

Heimilt er að gera kröfu um að umsækjandi búi yfir kunnáttu í íslensku og hafi þekkingu á íslenskri heilbrigðislöggjöf og matvælalöggjöf svo og öðrum lögum og stjórnvalds­fyrirmælum sem talin eru nauðsynleg til að geta starfað sem næringar­ráðgjafi, einkum vegna öryggis og samskipta við sjúklinga.

Hafi að mati landlæknis ekki verið sýnt fram á að nám umsækjanda uppfylli kröfur skv. 1. mgr. er heimilt að krefjast þess að umsækjandi gangist undir próf sem sýni fram á að hann búi yfir þeirri faglegu þekkingu og hæfni sem krafist er af næringarráðgjafa. Við­eigandi menntastofnun skal skipuleggja prófið í samráði við landlækni.

Starfsleyfi skv. 3. mgr. er gefið út við komu umsækjanda til starfa hér á landi.

4. gr.

Umsagnir.

Áður en leyfi er veitt skv. 2. gr. á grundvelli menntunar utan Íslands skal landlæknir leita umsagnar matvæla- og næringarfræðideildar heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands um það hvort umsækjandi uppfylli skilyrði um menntun skv. 1. mgr. 3. gr. fyrir veitingu starfsleyfis.

Landlækni er heimilt að leita umsagnar annarra aðila eftir þörfum.

III. KAFLI

Réttindi og skyldur.

5. gr.

Faglegar kröfur og ábyrgð.

Næringarráðgjafi skal sinna störfum sínum af árvekni og trúmennsku og í samræmi við þær faglegu kröfur sem gerðar eru til stéttarinnar á hverjum tíma.

Næringarráðgjafa ber að þekkja skyldur sínar og virða siðareglur stéttarinnar, viðhalda þekkingu og faglegri færni og tileinka sér nýjungar er varða starfið.

Næringarráðgjafi skal þekkja lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisstarfsmenn og heilbrigðisþjónustu og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli eftir því sem við á.

Næringarráðgjafi ber ábyrgð á þeim forvörnum og ráðgjöf sem hann veitir.

Næringarráðgjafi skal virða faglegar takmarkanir sínar og leita eftir aðstoð eða vísa sjúklingi sem til hans leitar til annars heilbrigðisstarfsmanns eftir því sem nauðsynlegt er, svo sem ef hann telur sig ekki geta veitt honum viðeigandi heilbrigðisþjónustu.

6. gr.

Upplýsingaskylda og færsla sjúkraskrár.

Um upplýsingaskyldu næringarráðgjafa gagnvart sjúklingi fer samkvæmt ákvæðum laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997.

Um skyldu næringarráðgjafa til að veita landlækni upplýsingar, meðal annars vegna eftirlits og til gerðar heilbrigðisskýrslna, fer samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007.

Næringarráðgjafi skal, eftir því sem við á, færa sjúkraskrá samkvæmt ákvæðum laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, og reglugerðum sem settar eru samkvæmt þeim.

7. gr.

Aðstoðarmenn og nemar.

Næringarráðgjafi ber ábyrgð á því að aðstoðarmenn og nemar, sem starfa undir hans stjórn, hafi næga hæfni og þekkingu og fái nauðsynlegar leiðbeiningar og tilsögn til að inna af hendi störf sem hann felur þeim.

8. gr.

Trúnaður og þagnarskylda.

Næringarráðgjafi skal gæta fyllstu þagmælsku um allt það sem hann kemst að í starfi sínu um heilsufar sjúklings, ástand, sjúkdómsgreiningu, horfur og meðferð ásamt öðrum persónulegum upplýsingum. Þetta gildir ekki bjóði lög annað eða rökstudd ástæða er til þess að rjúfa þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar.

Samþykki sjúklings eða forráðamanns, ef við á, leysir næringarráðgjafa undan þagnar­skyldu.

Þagnarskylda samkvæmt þessari grein nær ekki til atvika sem næringarráðgjafa ber að tilkynna um samkvæmt öðrum lagaákvæðum. Í þeim tilvikum ber næringarráðgjafa skylda til að koma upplýsingum um atvik á framfæri við þar til bær yfirvöld.

Um trúnaðar- og þagnarskyldu næringarráðgjafa gilda jafnframt ákvæði laga um réttindi sjúklinga, ákvæði laga um sjúkraskrár og önnur lög eftir því sem við á.

IV. KAFLI

Ýmis ákvæði.

9. gr.

Gjaldtaka.

Um gjaldtöku vegna útgáfu starfsleyfis fer skv. 10. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.

Um gjaldtöku vegna hvers konar umsýslu landlæknis vegna umsókna um starfsleyfi til viðbótar gjaldi skv. 1. mgr. og vegna prófa í faglegri þekkingu og færni fer samkvæmt reglugerð um gjaldtöku vegna umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi heilbrigðis­starfsmanna, nr. 951/2012.

10. gr.

Almenn ákvæði.

Ákvæði laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, svo og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli gilda eftir því sem við á um næringarráðgjafa.

11. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, öðlast gildi 1. janúar 2013. Frá sama tíma fellur brott reglugerð um starfs­heiti og starfsréttindi næringarráðgjafa, nr. 51/2007, með síðari breytingum.

Velferðarráðuneytinu, 11. desember 2012.

Guðbjartur Hannesson.

Vilborg Ingólfsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 18. desember 2012