Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 550/2011

Nr. 550/2011 18. maí 2011
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2002-2024, svæði fyrir þjónustustofnanir í landi Sólvalla.

Samkvæmt 19. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 hefur ráðherra þann 18. maí 2011 staðfest breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2002-2024, frá 8. júlí 2003.
Breytingin felst í því að 6,2 ha óbyggðu svæði er breytt í svæði fyrir þjónustustofnanir.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur málsmeðferð verið í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 og Skipulagsstofnun gert tillögu til ráðherra um staðfestingu.
Breytingin öðlast þegar gildi.

Umhverfisráðuneytinu, 18. maí 2011.

F. h. r.

Magnús Jóhannesson.

Íris Bjargmundsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 3. júní 2011