Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 325/2009

Nr. 325/2009 23. mars 2009
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð nr. 123/2009 um alþjóðlegar öryggisaðgerðir varðandi gereyðingarvopn.

1. gr.

Á eftir 1. mgr. 3. gr. bætist við ný mgr. sem verður 2. mgr. og hljóði svo:

Ákvæði 1. mgr. taka m.a. til hluta sem tilgreindir eru í skjölum öryggisráðsins nr. S/2006/814 (INFCIRC/254/Rev.8/Part1 og INFCIRC/254/Rev.7/Part2) og S/2006/815, dags. 13. október 2006, sbr. I. og II. viðauka við reglugerð nr. 146/2009 um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir varðandi Íran, og skjali öryggisráðsins nr. S/2006/853, dags. 7. nóvember 2006, sbr. III. viðauka við reglugerð nr. 153/2009 um alþjóðlegar þvingunar­aðgerðir varðandi Norður-Kóreu.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

3. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 23. mars 2009.

Össur Skarphéðinsson.

Benedikt Jónsson.

B deild - Útgáfud.: 26. mars 2009