Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og að fenginni tillögu bæjarstjórnar Seyðisfjarðarkaupstaðar hafa verið settar eftirfarandi reglur um umferð í Seyðisfjarðarkaupstað: Stöðvunarskylda verði er ekið er af vegi frá kirkjugarði inn á Vesturveg. Lónsleira verði aðalbraut og biðskylda komi á aðliggjandi götur. Biðskylda verði sett á Fjarðargötu, á tengingu Fjarðargötu og Lónsleiru, þegar ekið er í suðvestur frá Austfarshúsi. Í stað 45 km/klst. hámarkshraða innanbæjar verði umferðarhraði á helstu aðalgötum 50 km/klst. en í öllum öðrum íbúðargötum verði hámarkshraði 30 km/klst. Á Vesturvegi, Austurvegi (undanskilinn ytri hluti, frá Hafnargötu að Hafnargötu, í daglegu tali nefndur „Gamli Austurvegur"), Hafnargötu, Strandvegi, Ránargötu, Lónsleiru og Fjarðargötu verði hámarkshraði 50 km/klst., en á öðrum götum verði hann 30 km/klst. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði, 14. ágúst 2006. Lárus Bjarnason. |