Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1126/2014

Nr. 1126/2014 18. desember 2014
REGLUGERÐ
um skilgreiningu sameiginlegra verkefna, um ákvörðun stjórnunarhátta og um tilgreiningu hvata sem styðja við framkvæmd evrópsku mynsturáætlunarinnar um rekstrarstjórnun flugumferðar.

1. gr.

Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er skilgreining sameiginlegra verkefna sem vísað er til í 15. gr. a reglugerðar (ESB) nr. 550/2004 (þjónustureglugerðarinnar), þ.e. verkefna sem styðja við árangursríka framkvæmd evrópsku mynsturáætlunarinnar um rekstrarstjórnun flugumferðar.

2. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um evrópska netið fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar.

3. gr.

Lögbært yfirvald.

Samgöngustofa telst lögbært yfirvald samkvæmt reglugerð þessari og sér um eftirlit með framkvæmd hennar.

4. gr.

Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB), með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð (ESB) nr. 409/2013 frá 3. maí 2013 um skilgreiningu sameiginlegra verkefna, um ákvörðun stjórnunarhátta og um tilgreiningu hvata sem styðja við framkvæmd evrópsku mynsturáætlunarinnar um rekstrarstjórnun flugumferðar, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 28 frá 14. febrúar 2014. Reglu­gerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 12 frá 27. febrúar 2014, bls. 198.

5. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. mgr. 57. gr. a, 5. mgr. 75. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast gildi 1. janúar 2015.

Innanríkisráðuneytinu, 18. desember 2014.

Ólöf Nordal.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 19. desember 2014