1. gr. Sýslumaðurinn á Siglufirði veitir leyfi til tilfærslu líka í kirkjugarði eða flutning þeirra í annan kirkjugarð eða í grafreit, að fengnu samþykki kirkjugarðsstjórnar sem hlut á að máli og biskups Íslands. 2. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 2. mgr. 46. gr. og 1. mgr. 50. gr. laga nr. 36/1993 um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, sbr. 22. gr. laga nr. 145/2013, öðlast gildi 1. febrúar 2014. Innanríkisráðuneytinu, 21. janúar 2014. Hanna Birna Kristjánsdóttir. Ragnhildur Hjaltadóttir. |