1. gr. 12. gr. breytist þannig: Orðið „og“ í enda 4. töluliðar a-liðar fellur niður. 5. töluliður a-liðar fellur niður, 6. töluliður færist upp og verður 5. töluliður a-liðar. Nýr 5. töluliður orðist svo: lágmarksfjarlægð milli ása vagnlestar sé í samræmi við reglur sem veghaldari setur. 2. gr. Ákvæði til bráðabirgða breytist þannig: Í stað „1. janúar 2012“ komi: 1. janúar 2014. 3. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í 75. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og tekur gildi þann 1. janúar 2012. Innanríkisráðuneytinu, 23. desember 2011. Ögmundur Jónasson. Ragnhildur Hjaltadóttir. |