Frestur til að skila umsóknum um lækkun á fyrirframgreiðslu ársins 2011, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 1061/2010, er til 1. apríl nk. vegna manna, en til 16. maí 2011 vegna lögaðila. Umsóknir ásamt gögnum skulu því í síðasta lagi hafa verið sendar rafrænt á netfangið [email protected] eða póstlagðar til næstu skattstofu fyrir lok umsóknarfrests. Forsendur fyrir lækkun fyrirframgreiðslunnar eru þær að skattstofn vegna tekjuársins 2010 sé a.m.k. 25% lægri en sá skattstofn sem fyrirframgreiðslan ákvarðast af, þ.e. tekjuárið 2009, og að álögð gjöld 2011 muni af þeim sökum að lágmarki verða 50.000 kr. lægri en við álagningu 2010. Umsækjanda ber að sýna fram á forsendur fyrir lækkun á fyrirframgreiðslu með framlagningu skattframtals 2011 ásamt lögboðnum fylgiskjölum. Ársreikningar skulu fylgja skattframtölum rekstraraðila. Hafi umsækjandi skilað rafrænu framtali 2011 ásamt fylgigögnum er nægilegt að vísa til þess í umsókninni. Vakin er athygli á því að heimilt er að óska eftir endurupptöku ákvörðunar ríkisskattstjóra innan þriggja mánaða frá dagsetningu úrskurðar. Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 2. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1061/2010 og taka þegar gildi.
Reykjavík, 19. janúar 2011. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri. |