Frestur til að skila umsóknum um lækkun á fyrirframgreiðslu ársins 2014, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 1223/2013, er til 2. apríl nk. vegna manna, en til 31. maí 2014 vegna lögaðila. Umsóknir ásamt gögnum skulu því í síðasta lagi hafa verið sendar rafrænt á netfangið umsoknir@rsk.is eða póstlagðar til aðalskrifstofu ríkisskattstjóra eða næstu skattstofu fyrir lok umsóknarfrests. Forsendur fyrir lækkun fyrirframgreiðslunnar eru þær að skatt- eða gjaldstofnar vegna tekjuársins 2013 séu a.m.k. 25% lægri en þeir stofnar sem fyrirframgreiðslan ákvarðast af, þ.e. tekjuárið 2012, og að álögð gjöld 2014 muni af þeim sökum að lágmarki verða 50.000 kr. lægri en við álagningu 2013. Umsækjanda ber að sýna fram á forsendur fyrir lækkun á fyrirframgreiðslu með framlagningu skattframtals 2014 ásamt lögboðnum fylgiskjölum. Ársreikningar skulu fylgja skattframtölum rekstraraðila. Hafi umsækjandi skilað rafrænu framtali 2014 ásamt fylgigögnum er nægilegt að vísa til þess í umsókninni. Vakin er athygli á því að heimilt er að óska eftir endurupptöku á ákvörðun ríkis-skattstjóra innan þriggja mánaða frá dagsetningu úrskurðar. Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 2. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1223/2013 og taka þegar gildi.
Reykjavík, 6. janúar 2014. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri. |