Lögum samkvæmt ákveður og auglýsir fjármála- og efnahagsráðuneytið árlega fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns og innheimtuhlutfall í staðgreiðslu sem er samanlagt hlutfall tekjuskatts samkvæmt lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt og meðalhlutfall útsvars eins og það er samkvæmt ákvörðunum sveitarstjórna, sbr. lög nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga. Tekjuskattshlutfall á árinu 2013 verður 22,9% af tekjuskattsstofni að 2.897.702 kr., 25,8% af tekjuskattsstofni frá 2.897.703 kr. að 8.874.108 kr. og 31,8% af tekjuskattsstofni frá 8.874.109 kr. Meðalútsvar á árinu 2013 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 14,42%. Innheimtuhlutfall í staðgreiðslu á árinu 2013 verður því 37,32% af tekjuskattsstofni að 2.897.702 kr., 40,22% af tekjuskattsstofni frá 2.897.703 kr. að 8.874.108 kr. og 46,22% af tekjuskattsstofni frá 8.874.109 kr. Sé tekjuskattsstofn annars samskattaðs aðila hærri en 8.874.108 kr. skal það sem umfram er skattlagt með 25,8% skatthlutfalli allt að helmingi þeirrar fjárhæðar sem tekjuskattsstofn þess tekjulægri er undir 8.874.108 kr., þó reiknast 25,8% skatthlutfall aldrei af hærri fjárhæð en 2.988.203 kr. við þessar aðstæður. Samkvæmt A-lið 67. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal persónuafsláttur hvers einstaklings á árinu 2013 vera 581.820 krónur, eða 48.485 krónur að meðaltali á mánuði. Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 21. desember 2012. F. h. r. Maríanna Jónasdóttir. Ingibjörg Helga Helgadóttir. |