Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1059/2008

Nr. 1059/2008 19. nóvember 2008
REGLUGERÐ
um frest einstaklinga til að óska eftir greiðslujöfnun fasteignaveðlána.

1. gr.

Lántakandi getur hvenær sem er óskað eftir greiðslujöfnun verðtryggðra fasteigna­veðlána í samræmi við ákvæði laga um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga. Beiðni lántakanda um greiðslujöfnun þarf að berast lánveitanda eigi síðar en 11 dögum fyrir gjalddaga eigi hún að koma til framkvæmda þá, að öðrum skilyrðum uppfylltum. Berist beiðni lántakanda eftir það tímamark skal greiðslujöfnun koma til framkvæmda á næsta gjalddaga þar á eftir, að öðrum skilyrðum uppfylltum. Lánveitandi getur þó veitt lántakanda rúmri frest en hér segir.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skulu lántakendur hafa frest til og með 25. nóvember 2008 vegna gjalddaga verðtryggðra fasteignaveðlána 1. desember 2008.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 7. gr. laga nr. 63/1985, um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 19. nóvember 2008.

Jóhanna Sigurðardóttir.

Ágúst Geir Ágústsson.

B deild - Útgáfud.: 20. nóvember 2008