1. gr. Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum samkvæmt viðaukum III A og IV A við tollalög, nr. 88/2005, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993. 2. gr. Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll: | Vara | Tímabil | Vörumagn | Verðtollur | Magntollur | Tollskrárnr. | | | kg | % | kr./kg | 0407.0001 | Frjóegg (af tegund Gallus domesticus) | 01.01. - 31.12.11 | ótilgr. | 0 | 0 | Úr 0404.9000 | Mysuduft | 01.01. - 31.12.11 | ótilgr. | 0 | 5 |
Tímabil þau sem tilgreind eru miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabils. 3. gr. Við innflutning á frjóeggjum (0407.0001) skal gætt ákvæða laga nr. 54/1990, um innflutning dýra, með síðari breytingum. 4. gr. Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála. 5. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr., og 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2011. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 18. nóvember 2010. Jón Bjarnason. Arnór Snæbjörnsson. |