Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 711/2008

Nr. 711/2008 17. júlí 2008
AUGLÝSING
(I) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 605, 1. júní 2008 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2007/2008 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum:

Seyðisfjörður.
Ákvæði reglugerðar nr. 605 frá 24. júní 2008 gilda um úthlutun byggðakvóta Seyðisfjarðar með eftirfarandi viðauka/breytingum:
15 þorskígildislesta hámark skv. 4. gr. er fellt niður.

Árneshreppur.
Ákvæði reglugerðar nr. 605 frá 24. júní 2008 gilda um úthlutun byggðakvóta Árneshrepps með eftirfarandi viðauka/breytingum:
Byggðakvóta skal skipta jafnt á milli fiskiskipa sem skráð voru í Árneshreppi 1. maí 2008.

Kaldrananeshreppur.
Ákvæði reglugerðar nr. 605 frá 24. júní 2008 gilda um úthlutun byggðakvóta Kaldrananeshrepps með eftirfarandi viðauka/breytingum:
Byggðakvóta skal úthlutað til fiskiskipa í hlutfalli við landaðan afla á Drangsnesi frá 1. september 2007 til 31. mars 2008.

Grímseyjarhreppur.
Ákvæði reglugerðar nr. 605 frá 24. júní 2008 gilda um úthlutun byggðakvóta Grímseyjarhrepps með eftirfarandi viðauka/breytingum:
Vinnsluskyldu byggðakvóta Grímseyjarhrepps samkvæmt 6. gr. er aflétt.

Borgarfjarðarhreppur.
Ákvæði reglugerðar nr. 605 frá 24. júní 2008 gilda um úthlutun byggðakvóta Borgarfjarðarhrepps með eftirfarandi viðauka/breytingum:
Vinnsluskyldu byggðakvóta Borgarfjarðarhrepps samkvæmt 6. gr. er aflétt.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 17. júlí 2008.

F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.

Hinrik Greipsson.

B deild - Útgáfud.: 18. júlí 2008