Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 662/2010

Nr. 662/2010 18. ágúst 2010
REGLUGERÐ
um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2010/2011.

Veiðileyfi í atvinnuskyni.

1. gr.

Veiðar í atvinnuskyni í fiskveiðilandhelgi Íslands eru óheimilar nema að fengnu leyfi Fiskistofu. Um veitingu veiðileyfa í atvinnuskyni gildir 5. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

Heildarafli og veiðitímabil.

2. gr.

Fyrir fiskveiðiárið 1. september 2010 til 31. ágúst 2011 er leyfilegur heildarafli í óslægðum botnfiski sem hér segir:

 

1

2

3

4

5

6

Tegund

Lestir

Lestir

Lestir

Lestir

Lestir

Lestir

1. Þorskur

160.000

1.545

2.952

3.375

4.800

147.328

2. Ýsa

50.000

483

922

2.100

 

46.495

3. Ufsi

50.000

483

922

 

1.200

47.395

4. Steinbítur

12.000

116

221

900

 

10.763

5.1 Gullkarfi

30.000

    

30.000

5.2 Djúpkarfi

10.000

    

10.000

6. Grálúða

13.000

    

13.000

7. Sandkoli

500

    

500

8. Skrápflúra

200

    

200

9. Skarkoli

6.500

    

6.500

10. Þykkvalúra

1.800

    

1.800

11. Langlúra

1.300

    

1.300

12. Keila

6.000

    

6.000

13. Langa

7.500

    

7.500

14. Skötuselur

2.500

    

2.500

Skýringar á töflu:

  1. Leyfilegur heildarafli.
  2. Til uppbóta skv. 1. tl. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 (skel- og rækjubætur).
  3. Til ráðstöfunar skv. 2. tl. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 (til stuðnings byggðarlögum).
  4. Til línuívilnunar skv. 8. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006.
  5. Til strandveiða skv. 6. gr. a laga nr. 116/2006.
  6. Til úthlutunar á grundvelli aflahlutdeildar.

Aflamark í botnfiski miðast við slægðan fisk með haus nema í gullkarfa og djúpkarfa sem miðast við óslægðan fisk.

Aflamark í sandkola og skrápflúru miðast við afla sem veiddur er á svæði sunnan 64°30'N við Austurland og sunnan við línu sem dregin er réttvísandi vestur úr Öndverðarnesi. Afli í sandkola og skrápflúru sem veiddur er norðan þessara lína reiknast ekki til aflamarks, sbr. 2. mgr. 13. gr.

3. gr.

Á tímabilinu 1. september 2010 til 31. ágúst 2011 er leyfilegur heildarafli í öðrum tegundum en botnfiski sem hér segir:

Tegund

Lestir

1. Síld (íslensk sumargotssíld)

0    

2. Humar

2.100    

3. Hörpudiskur

0    

4. Innfjarðarækja

0    

Aflamark í uppsjávarfiski miðast við óslægðan fisk. Aflamark í humri miðast við slitinn humar.

Leyfilegur heildarafli í síld (íslenskri sumargotssíld) og innfjarðarækju, skv. 1. og 4. tl., er miðaður við bráðabirgðatillögur Hafrannsóknastofnunarinnar um upphafsafla og verður ákvörðun um heildarafla í þessum tegundum endurskoðuð að fengnum nýjum tillögum.

Veiðitímabil síldar er frá og með 1. september 2010 til og með 30. apríl 2011.

Veiðitími og heildarafli annarra tegunda er ákveðinn í sérstakri reglugerð eða með sérstökum leyfum.

Úthafsrækjuveiðisvæði.

4. gr.

Til úthafsrækju telst rækja, sem veidd er á svæðum, sem skilgreind eru í reglugerð nr. 396, 22. apríl 2005, um úthafsrækjuveiðisvæði o.fl., og ennfremur rækja, sem veidd er innan viðmiðunarlínu á Breiðafirði sunnan 65°10'N.

Úthafsrækju sem veidd er á Dohrnbanka vestan 26°V og norðan 65°30'N skal skrá sérstaklega og skulu skip sem veiðar stunda á Dohrnbanka búin fjarskiptabúnaði, sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til Landhelgisgæslunnar um staðsetningu skipsins á klukkustundar fresti. Skulu sendingar samkvæmt ofangreindu hefjast þegar viðkomandi skip lætur úr höfn og ekki ljúka fyrr en skipið kemur til hafnar að nýju til löndunar afla.

Skipting leyfilegs afla.

5. gr.

Veiðiheimildum í þeim tegundum sem heildarafli er takmarkaður af, skv. 2. og 3. gr. skal skipt milli einstakra skipa í samræmi við aflahlutdeild eða krókaaflahlutdeild þeirra í viðkomandi tegund. Úthlutað aflamark (krókaaflamark) hvers skips í hverri einstakri tegund ræðst annars vegar af aflahlutdeild (krókaaflahlutdeild) skipsins í viðkomandi tegund en hins vegar af úthlutuðu heildaraflamarki í tegundinni skv. 2. og 3. gr.

Krókaaflamarksbátar.

6. gr.

Bátum, sem leyfi hafa til veiða með krókaaflamarki, skal úthlutað krókaaflamarki í þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu og gullkarfa á grundvelli krókaaflahlutdeildar þeirra. Um krókaaflahlutdeild og krókaaflamark gilda sömu reglur um útreikning, nýtingu og framsal og gilda um aflahlutdeild og aflamark nema öðruvísi sé kveðið á um í lögum eða reglugerð þessari.

Bátum sem leyfi hafa til veiða með krókaaflamarki, er einungis heimilt að stunda veiðar með línu og handfærum. Fiskistofa getur veitt undanþágu frá banni þessu með sérstökum leyfum til veiða á botndýrum með plógum og gildrum svo og til hrognkelsaveiða í net. Afli sem fæst við slíkar veiðar reiknast til aflamarks bátsins.

Heimilt er að flytja til krókaaflamarksbáts aflamark í öðrum tegundum botnfisks en tilgreindar eru í 1. mgr. þessarar greinar. Aflahlutdeild í öðrum tegundum en tilgreindar eru í 1. mgr. er ekki heimilt að flytja til krókaaflamarksbáts. Veiði bátur aðrar tegundir en hann hefur krókaaflamark í, skal skerða aflamark hans í öðrum tegundum skv. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006 og reglum settum samkvæmt þeim ákvæðum. Hverjum báti skal þó heimilt, án þess að til skerðingar komi, að veiða allt að 2% af heildarafla sínum í kvótabundnum botnfisktegundum, öðrum en þeim sem tilgreindar eru í 1. mgr., þó þannig að afli í einni tegund fari aldrei yfir 1% af heildarafla bátsins.

Útreikningur aflamarks.

7. gr.

Þegar umreikna skal óslægðan fisk í slægðan skal margfalda magn þorsks, ýsu og ufsa með 0,84, grálúðu, skarkola, sandkola, skrápflúru, langlúru og þykkvalúru með 0,92, steinbíts, keilu og skötusels með 0,90 og löngu með 0,80.

Þegar umreikna skal slægðan fisk í óslægðan skal deila í magn þorsks, ýsu og ufsa með 0,84, grálúðu, skarkola, sandkola, skrápflúru, langlúru og þykkvalúru með 0,92, steinbíts, keilu og skötusels með 0,90 en löngu með 0,80.

Þegar umreikna skal slitinn humar yfir í óslitinn skal margfalda vegið magn humarhala með 3,25. Þegar umreikna skal óslitinn humar yfir í slitinn humar skal deila í vegið magn óslitins humars með 3,25.

Þorskur styttri en 50 sm (27 sm hausaður) og ufsi styttri en 50 sm (31 sm hausaður), ýsa styttri en 45 sm (26,5 sm hausuð) og karfi styttri en 33 sm teljast að hálfu til aflamarks, enda fari afli undir áðurgreindum stærðarmörkum ekki yfir 10% af viðkomandi tegund í veiðiferð. Undirmálsafla skal haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn sérstaklega af löggiltum vigtarmanni. Þó er heimilt að ákvarða magn undirmáls í gull- og djúpkarfaafla við endurvigtun í vinnsluhúsi. Skal gullkarfa og djúpkarfa sem þannig er og sem flokkaður er frá í vinnsluhúsi til ákvörðunar á magni undirmáls, haldið aðgreindum frá öðrum afla. Ákvæði þessarar málsgreinar gilda þó ekki um afla sem flakaður er um borð í veiðiskipi. Hausaðan fisk skal mæla frá sporðsenda að gotrauf.

Komi afli í veiðarfæri skips, sem er selbitinn eða skemmdur á annan hátt, sem ekki er unnt að komast hjá við tilteknar veiðar, skal ekki reikna þann afla til aflamarks enda sé honum haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn og skráður sérstaklega. Þennan afla er eingöngu heimilt að nýta til bræðslu.

Heimilt er skipstjóra að ákveða að hluti aflans reiknist ekki til aflamarks skipsins. Þessi heimild takmarkast við 0,5% af uppsjávarafla og 5% af öðrum sjávarafla, sem viðkomandi skip veiðir á fiskveiðiárinu og er bundin eftirfarandi skilyrðum:

  1. Aflanum sé haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn og skráður sérstaklega.
  2. Aflinn sé seldur á uppboði á viðurkenndum uppboðsmarkaði fyrir sjávarafla og andvirði hans renni til Verkefnasjóðs sjávarútvegsins sbr. lög nr. 37/1992, með síðari breytingum.

Um heimild til veiða umfram aflamark í einstökum fisktegundum sem skerðir aflamark annarra botnfisktegunda hlutfallslega gilda ákvæði 1. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

Sé botnfiskafli fluttur óunninn á erlendan markað án þess að hafa verið endanlega vigtaður hér á landi og skráður í aflaskráningarkerfi Fiskistofu skal reikna aflann með 5% álagi.

8. gr.

Þegar meta skal til hvaða fiskveiðiárs tiltekinn afli telst, skal miða við hvenær afla er landað hér á landi. Þannig telst afli sem landað er 1. september 2010 eða síðar til fiskveiðiársins 1. september 2010 til 31. ágúst 2011, enda þótt veiðiferð hefjist fyrir upphaf þess fiskveiðiárs.

Sigli skip með eigin afla á erlendan markað, skal afli teljast til þess fiskveiðiárs, þá er skipið sannanlega hættir veiðum fyrir siglingu.

Framsal aflamarks og aflahlutdeildar.

9. gr.

Þegar fiskiskipi hefur verið úthlutað aflamarki, er heimilt að flytja aflamarkið á milli fiskiskipa enda leiði flutningurinn ekki til þess að veiðiheimildir skipsins verði bersýnilega umfram veiðigetu þess. Krókaaflamark verður aðeins flutt til báts, sem hefur veiðileyfi með krókaaflamarki og er undir 15 brúttótonnum.

Á hverju fiskveiðiári er heimilt að flytja af fiskiskipi 50% þess aflamarks sem skipi var úthlutað í þorskígildum talið á grundvelli verðmætahlutfalla einstakra tegunda. Auk þess er heimilt að flytja frá skipi það aflamark í einstökum tegundum sem flutt hefur verið til skips. Heimilt er Fiskistofu að víkja frá þessari takmörkun á heimild til flutnings á aflamarki vegna varanlegra breytinga á skipakosti útgerða eða þegar skip hverfur úr rekstri um lengri tíma vegna alvarlegra bilana eða sjótjóns.

Tilkynna skal Fiskistofu um flutning aflamarks á eyðublaði sem Fiskistofa gefur út og öðlast flutningurinn ekki gildi fyrr en Fiskistofa hefur staðfest hann. Í tilkynningunni skulu koma fram upplýsingar um nöfn og skipaskrárnúmer þeirra skipa sem aflamark er flutt á milli og magn aflamarks, auk upplýsinga um verð aflamarks nema skipin séu í eigu sama aðila. Eigandi og útgerðaraðili þess skips sem aflamarkið er flutt frá skulu undirrita og leggja fram tilkynningu um flutning og skal tilkynningin einnig vera undirrituð af útgerðaraðila þess skips sem aflamarkið er flutt til.

Tilkynningu um flutning aflamarks skal fylgja staðfesting Verðlagsstofu skiptaverðs um að fyrir liggi samningur útgerðar og áhafnar þess skips sem aflamarkið er flutt til, um fiskverð til viðmiðunar hlutaskiptum. Skal sá samningur uppfylla kröfur sem Verðlagsstofa skiptaverðs gerir skv. ákvæðum laga nr. 13/1998 um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna, með síðari breytingum. Telji Verðlagsstofa skiptaverðs að gildissvið laga nr. 13/1998 nái ekki yfir viðkomandi skip, skal staðfesting Verðlagsstofu skiptaverðs lúta að því.

Sá sem tilkynnir um flutning aflamarks skal greiða Fiskistofu flutningsgjald að fjárhæð kr. 2.000 með hverri tilkynningu. Þá skal útgerð greiða kr. 7.100 hafi komið til skeytasendingar Fiskistofu til útgerðar og skipstjóra skv. 1. mgr. 14. gr. laga nr. 57/1996, með síðari breytingum. Gjalddagi reiknings er við útgáfu reiknings og eindagi er 15 dögum síðar. Gjaldið er óendurkræft. Hafi reikningur ekki verið greiddur á eindaga er Fiskistofu heimilt að stöðva frekari flutning aflamarks frá og til viðkomandi fiskiskips.

Heimilt er Fiskistofu að gera þjónustusamninga um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks milli fiskiskipa sem eru í eigu sama einstaklings eða lögaðila og skal greiða kr. 12.000 til Fiskistofu fyrir slíka samninga fyrir hvert fiskveiðiár. Sækja skal til Fiskistofu um gerð þjónustusamnings um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks á eyðublöðum sem Fiskistofa leggur til. Á umsóknareyðublöðunum skulu koma fram þær upplýsingar sem Fiskistofa telur nauðsynlegar og óskar þar eftir. Verði breytingar á atriðum sem útgerð hefur tilgreint í umsókn sinni skal hlutaðeigandi útgerð tilkynna Fiskistofu skriflega um breytingarnar án tafar.

Útgerð ber alfarið ábyrgð á öllum rafrænum tilkynningum um flutning aflamarks sem framkvæmdar eru samkvæmt þjónustusamningi hennar við Fiskistofu og skal útgerðin tryggja að óviðkomandi aðilar komist ekki yfir aðgang hennar til að tilkynna Fiskistofu rafrænt um flutning aflamarks. Þjónustusamningur um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks fellur úr gildi verði vanskil á greiðslu gjalds fyrir samninginn og ef hlutaðeigandi útgerð hefur brotið gegn reglum er gilda um flutning aflamarks eða skilyrðum sem sett hafa verið varðandi rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks.

Fiskistofa skal daglega birta aðgengilegar upplýsingar um flutning aflamarks, þar á meðal um magn eftir tegundum, auk upplýsinga um verð, þar sem við á.

Tilkynning um flutning aflamarks skal hafa borist Fiskistofu eigi síðar en 15 dögum eftir að veiðitímabili lýkur.

10. gr.

Flutning á aflahlutdeild milli fiskiskipa skal tilkynna Fiskistofu skriflega fyrirfram. Krókaaflahlutdeild verður aðeins flutt til báts sem hefur veiðileyfi með krókaaflamarki og er undir 15 brúttótonnum. Eigandi þess skips, sem aflahlutdeildin er flutt frá, skal undirrita beiðni um flutning. Við flutning á aflahlutdeild skal leggja fram veðbókarvottorð þess skips sem flutt er frá auk skriflegs samþykkis eftirgreindra aðila:

  1. aðila er þinglýst samningsveð áttu í skipinu 1. janúar 1991,
  2. aðila, sem eiga þinglýsta kvöð á skipinu þar sem kveðið er á um að framsal aflahlutdeildar sé óheimilt án samþykkis kvaðarhafa,
  3. þinglýst samþykki þeirra aðila, sem eiga þinglýst samningsveð í skipinu frá og með 1. janúar 1998.

Flutningur aflahlutdeildar öðlast ekki gildi fyrr en staðfesting Fiskistofu liggur fyrir. Aldrei er heimilt að flytja aflahlutdeild milli skipa, leiði slíkur flutningur til þess að veiðiheimildir þess skips sem flutt er til verði bersýnilega umfram veiðigetu þess.

Umsóknir um flutning aflahlutdeildar milli fiskiskipa ásamt fullnægjandi fylgigögnum skulu hafa borist Fiskistofu eigi síðar en 31. júlí 2011. Berist umsókn eftir 31. júlí 2011, hefur flutningur aflahlutdeildar ekki áhrif á úthlutun aflamarks fiskveiðiárið 2011/2012.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, einstaklinga eða lögaðila eða í eigu tengdra aðila ekki nema hærra hlutfalli af heildaraflahlutdeild en tilgreint er í 13. gr. laga um stjórn fiskveiða. Að auki skal steinbítur lúta takmörkunum skv. 2. mgr. sömu lagagreinar. Fyrir staðfestingu Fiskistofu á flutningi aflahlutdeildar og krókaaflahlutdeildar milli skipa skal eigandi þess skips sem flutt er frá greiða kr. 1.800.

Veiðiskylda.

11. gr.

Veiði fiskiskip minna en 50% á fiskveiðiári af úthlutuðu aflamarki sínu og aflamarki sem flutt hefur verið frá fyrra fiskveiðiári, í þorskígildum talið, fellur aflahlutdeild þess niður og skal aflahlutdeild annarra skipa í viðkomandi tegundum hækka sem því nemur. Skal við mat á þessu hlutfalli miðað við verðmæti einstakra tegunda í aflamarki skips skv. 12. gr. Viðmiðunarhlutfall, sem ákveðið er í þessari málsgrein, lækkar þó um 5% fyrir hverja fulla 30 daga sem skipi er haldið til veiða utan fiskveiðilandhelgi Íslands á fiskveiðiárinu á þeim tegundum sem ekki hefur verið samið um veiðistjórn á. Hið sama á við þegar skipi er haldið til veiða utan lögsögu á tegundum sem samið hefur verið um veiðistjórn á og ekki teljast til deilistofna. Tefjist skip frá veiðum í fimm mánuði samfellt vegna tjóns eða meiri háttar bilana hefur afli þess fiskveiðiárs ekki áhrif til niðurfellingar aflahlutdeildar samkvæmt þessari grein.

Þorskígildisstuðlar.

12. gr.

Þorskígildisstuðlar fyrir fiskveiðiárið 1. september 2010 til 31. ágúst 2011 eru þessir:

Tegund

Stuðlar

Tegund

Stuðlar

Tegund

Stuðlar

Þorskur

1,00

Ýsa

0,95

Karfi

0,74

Ufsi

0,64

Grálúða

2,21

Loðna

0,17

Keila

0,34

Langlúra

0,60

Síld

0,11

Langa

0,51

Sandkoli

0,24

Humar slitinn

4,51

Skötuselur

1,92

Skarkoli

0,80

Þykkvalúra

1,07

Steinbítur

0,87

Skrápflúra

0,34

  

Ofangreindir stuðlar gilda við mat á því hvernig veiðiheimildir eru nýttar og varðandi færslu milli tegunda eftir því sem við á, sbr. 11. og 15. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

Ýmis ákvæði.

13. gr.

Skipstjóra er skylt að halda fiski um borð í veiðiskipum aðgreindum eftir tegundum. Verði slíku ekki við komið vegna smæðar báts skal afli aðgreindur eftir tegundum við löndun. Ennfremur er skylt að láta vigta afla skv. ákvæðum III. kafla laga nr. 57/1996 um umgengni um nytjastofna sjávar og gildandi reglugerðar um vigtun sjávarafla.

Afla af skrápflúru og sandkola sem fenginn er á því veiðisvæði sem tilgreint er í 3. mgr. 2. gr. skal haldið aðskildum frá öðrum afla af þessum tegundum og hann veginn og skráður sérstaklega.

Skipstjórar fiskiskipa, sem halda til úthafsrækjuveiða á Dohrnbanka, sbr. 2. mgr. 4. gr., skulu tilkynna sérstaklega til Fiskistofu hvenær þær hefjast og hvenær þeim lýkur.

Ef haldið er til veiða utan fiskveiðilandhelgi Íslands skal, þegar haldið er úr höfn, tilkynna Fiskistofu hvar fyrirhugað sé að stunda veiðar. Þá skal tilkynna hvenær veiðar hefjast og hvenær þeim lýkur, nema annað sé ákveðið í sérstökum reglugerðum um viðkomandi veiðar. Í tilkynningunni komi fram, eftir því sem við á, áætlaður afli um borð, sundurliðaður eftir tegundum.

Í einni og sömu veiðiferð er óheimilt að stunda veiðar bæði innan og utan fiskveiðilögsögu Íslands. Þetta gildir þó ekki, haldi skip til veiða utan lögsögunnar á úthafskarfa, síld, loðnu, kolmunna, túnfiski eða makríl, enda sé Fiskistofu tilkynnt um slíkt í samræmi við reglur þar að lútandi.

Heimilt er þó með samþykki Fiskistofu að víkja frá banni skv. 5. mgr., enda hafi afli og aflasamsetning um borð í fiskiskipi verið staðfest með fullnægjandi hætti að mati Fiskistofu, áður en skip flytur sig milli veiðisvæða utan og innan lögsögunnar.

Þegar skip stundar veiðar utan lögsögu Íslands, í fiskveiðilögsögu annars ríkis eða á alþjóðlegu hafsvæði, og um er að ræða veiðar sem grundvallast á samningi sem íslensk stjórnvöld eru ekki aðilar að, skal skipstjóri tilkynna Fiskistofu mánaðarlega um veiðisvæði, veiðitíma, löndunarhöfn og landaðan afla sundurliðaðan eftir tegundum.

14. gr.

Útgerðum skipa sem fengið hafa leyfi Fiskistofu til að vinna afla um borð er skylt að lokinni veiðiferð að skila sérstakri skýrslu um afla til Fiskistofu á eyðublöðum sem Fiskistofa leggur til.

Þá er skipstjórum fiskiskipa skylt að halda sérstakar afladagbækur sbr. reglugerð nr. 557/2007, um afladagbækur.

Kaupendum afla er skylt að skila til Fiskistofu skýrslum um móttekinn afla í því formi, sem Fiskistofa ákveður sbr. reglugerð nr. 910/2001, um skýrsluskil vegna viðskipta með afla, með síðari breytingum.

15. gr.

Heimilt er að nýta báta, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni, til veiða í frístundum, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, enda séu engin veiðarfæri um borð, önnur en handfæri án sjálfvirknibúnaðar eða sjóstangir. Óheimilt er að selja aflann eða fénýta á annan hátt.

Skipstjórar báta, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni og fara til veiða skv. 1. mgr., skulu tilkynna Fiskistofu um það áður en veiðiferð hefst.

16. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum og laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

Um áminningar og sviptingu veiðileyfa vegna brota á ákvæðum reglugerðar þessarar fer skv. ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum og laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum.

Um gjald vegna ólögmæts sjávarafla skal beita ákvæðum laga nr. 37, 27. maí 1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla.

17. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er skv. ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, laga nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum og laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, öðlast þegar gildi og kemur til framkvæmda 1. september 2010 og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 588, 15. júlí 2010, um leyfilegan heildarafla á fiskveiðiárinu 2010/2011.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 18. ágúst 2010.

Jón Bjarnason.

Sigurgeir Þorgeirsson.

B deild - Útgáfud.: 19. ágúst 2010