1. gr. Skráðir sjúkdómar. IV. viðauka í reglugerð nr. 1254/2008 er breytt í samræmi við viðauka þessarar reglugerðar. 2. gr. Gildistaka. Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á tilskipun 2008/53/EB að því er varðar vorveiru í vatnakarpa (SVC). Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 55/1998, um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða, lögum nr. 71/2008, um fiskeldi, lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 9. mars 2009. F. h. r. Sigurgeir Þorgeirsson. Baldur P. Erlingsson. VIÐAUKI (sjá PDF-skjal) |