Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 15/2014

Nr. 15/2014 10. janúar 2014
REGLUR
um skattmat vegna tekna af landbúnaði árið 2014.

Eftirfarandi reglur um skattmat tekna af landbúnaði á árinu 2014 eru settar skv. 118. gr. nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. og 2. tölul. B-liðar 17. gr. reglugerðar nr. 245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt. Um er að ræða mat á tekjum í búrekstri, hvort sem um er að ræða einstaklingsrekstur eða rekstur lögaðila sem færa ber á rekstrarreikning landbún­aðarskýrslu rekstrarársins 2014.

Búsafurðir til heimanota og önnur endurgjaldslaus afhending þeirra til eigenda, starfs­manna og skylduliðs þeirra skal telja til rekstrartekna á rekstrarreikningi land­bún­aðar­skýrslu. Tekur skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa o.s.frv. og sjávarafla og afla eldis­stöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu til óskylds aðila. Séu afurðir þessar afhentar á lægra verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og mats­verð­inu talinn til rekstrartekna hjá búinu.

Skattmat á heimaafnotum búsafurða o.fl. vegna tekjuársins 2014 er sem hér segir:

Tegund

Krónur

Eining

Mjólk

83     

pr. lítra

Egg

459     

pr. kg

Kartöflur

81     

pr. kg

Rófur

129     

pr. kg

Gulrætur

290     

pr. kg

Lambakjöt

634     

pr. kg

Kjöt af veturgömlu fé

278     

pr. kg

Annað kjöt af sauðfé

180     

pr. kg

Ungnautakjöt

628     

pr. kg

Annað kjöt af nautgripum

408     

pr. kg

Folaldakjöt

278     

pr. kg

Annað kjöt af hrossum

100     

pr. kg

Grísakjöt

458     

pr. kg

Annað svínakjöt

323     

pr. kg

Kalkúnar, endur og gæsir

640     

pr. kg

Annað fuglakjöt

429     

pr. kg

Fiskur

500     

pr. kg

Reykjavík, 10. janúar 2014.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 13. janúar 2014