Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 7/2015

Nr. 7/2015 8. janúar 2015
AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um frest til að skila umsókn um lækkun á fyrirframgreiðslu þinggjalda á árinu 2015.
  1. Frestur til að skila umsóknum um lækkun á fyrirframgreiðslu ársins 2015, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 1145/2014, er til 2. apríl nk. vegna manna, en til 31. maí 2015 vegna lögaðila. Umsóknir ásamt gögnum skulu því í síðasta lagi hafa verið sendar rafrænt á netfangið [email protected] eða póstlagðar til aðalskrifstofu ríkis­skatt­stjóra eða næstu skattstofu fyrir lok umsóknarfrests.
  2. Forsendur fyrir lækkun fyrirframgreiðslunnar eru þær að skatt- eða gjaldstofnar vegna tekjuársins 2014 séu a.m.k. 25% lægri en þeir stofnar sem fyrir­fram­greiðslan ákvarðast af, þ.e. tekjuárið 2013, og að álögð gjöld 2015 muni af þeim sökum að lágmarki verða 50.000 kr. lægri en við álagningu 2014.
  3. Umsækjanda ber að sýna fram á forsendur fyrir lækkun á fyrirframgreiðslu með framlagningu skattframtals 2015 ásamt lögboðnum fylgiskjölum. Ársreikningar skulu fylgja skattframtölum rekstraraðila. Hafi umsækjandi skilað rafrænu framtali 2015 ásamt fylgigögnum er nægilegt að vísa til þess í umsókninni.
  4. Vakin er athygli á því að heimilt er að óska eftir endurupptöku á ákvörðun ríkis­skattstjóra innan þriggja mánaða frá dagsetningu úrskurðar.
  5. Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 2. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1145/2014 og taka þegar gildi.

Reykjavík, 8. janúar 2015.

F.h. ríkisskattstjóra,

Ingvar J. Rögnvaldsson.

Karl Óskar Magnússon.

B deild - Útgáfud.: 8. janúar 2015