1. gr. Reglugerð þessi gildir um opinberar fjársafnanir, á grundvelli laga um opinberar fjársafnanir, nr. 5 24. mars 1977. 2. gr. Með opinberri fjársöfnun er átt við starfsemi þar sem almenningur er hvattur til að láta fé af hendi í þágu ákveðins málefnis án þess að endurgjald komi í staðinn. Þó svo að sá sem lætur fé af hendi til fjársöfnunar fái endurgjald í formi táknræns hlutar, telst hann ekki hafa fengið endurgjald, hafi hluturinn ekki sjálfstætt verðgildi. 3. gr. Ákvæði þessarar reglugerðar gilda ekki um: a) | uppboð til góðgerðarmála, stuðningstónleika eða stuðningssamkomur, | b) | safnanir á notuðum verðlitlum hlutum, | c) | fjársafnanir á samkomum, | d) | fjársafnanir á vegum fjölmiðla í opinberu góðgerðarskyni, ef viðkomandi fjölmiðill birtir skrá yfir framlag allra gefenda. Ennfremur skal fjölmiðillinn birta viðurkenningu þeirra, er veita fénu viðtöku að söfnun lokinni. |
4. gr. Fjársöfnun með keðjubréfum er óheimil. 5. gr. Í umsókn til dóms- og kirkjumálaráðuneytis vegna opinberrar fjársöfnunar á götum eða í húsum svo og í tilkynningu til viðkomandi lögreglustjóra um opinbera fjársöfnun, skulu a.m.k. eftirtalin atriði koma fram: a) | hver standi fyrir fjársöfnuninni, nöfn þeirra og kennitölur, | b) | hvar fjársöfnun skuli fara fram, | c) | hvenær fjársöfnun skuli fara fram, | d) | hvernig fjársöfnun skuli fara fram, | e) | í hvaða tilgangi fjársöfnun fer fram og hver sé móttakandi söfnunarfjár, | f) | hver beri ábyrgð á fjárvörslu (fjávörsluaðili), ef það er annar aðili en stjórn félags eða stofnunar. |
6. gr. Með umsókn um leyfi til opinberrar fjársöfnunar eða tilkynningu um slíka söfnun skulu a.m.k. fylgja eftirtalin gögn: a) | Vottorð úr fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra þar sem fram kemur heiti félags, stofnunar eða samtaka, kennitala, heimilisfang og hverjir sitji þar í stjórn. Standi samtök manna fyrir fjársöfnun skulu þeir sem ábyrgð bera á söfnuninni sbr. 2. mgr. 1. gr. laga um opinberar fjársafnanir leggja fram persónuskilríki. | b) | Staðfesting fjárvörsluaðila, sbr. f-lið 5. gr. á að hann hafi tekið að sér vörslu söfnunarfjár. |
7. gr. Opinber fjársöfnun skal vera til tiltekins tíma, þó ekki til lengri tíma en tveggja ára. 8. gr. Innan 6 mánaða frá lokum fjársöfnunar skal sá sem fyrir henni stendur afhenda lögreglustjóra eftirtalin gögn: a) | Endurskoðaðan reikning söfnunarinnar. | b) | Staðfestingu þess er móttekið hefur söfnunarfé. | c) | Upplýsingar um hvar og hvenær birting á reikningi söfnunarinnar fari fram sbr. 7. gr. laga um opinberar fjársafnanir. |
Ef söfnunarfé nær ekki 500.000 kr. má tilkynna opinberlega að reikningshald fjársöfnunar sé til sýnis á nánar tilteknum stað í a.m.k. 14 daga. 9. gr. Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 9. gr. laga um opinberar fjársafnanir, nr. 5 24. mars 1977, öðlast gildi 1. september 2008. Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 25. júlí 2008. Björn Bjarnason. Hjalti Zóphóníasson. |