Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 46/2007

Nr. 46/2007 15. janúar 2007
AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi golfvallar á Blikastaðanesi, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 13. desember 2006 í samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt breytingu á deiliskipulagi golfvallar á Blikastaða­nesi. Í breytingunni felst lítilsháttar stækkun á byggingarreit fyrir golfskála og um leið færsla hans fjær byggð við Þrastarhöfða, auk hækkana á leyfðri hæð og hámarks­stærð hússins.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 15. janúar 2007,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 26. janúar 2007