Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 291/2014

Nr. 291/2014 6. mars 2014
GJALDSKRÁ
embættis byggingar- og skipulagsfulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

1. gr.

Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.

Af öllum lóðum og nýbyggingum og stækkunum eldri húsa í Sveitarfélaginu Hornafirði, hvort sem er á eignarlóðum eða leigulóðum, skulu lóðarhafar greiða til sveitarfélagsins eftirtalin gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari:

  1. Gatnagerðargjald. Af öllum nýbyggingum og viðbyggingum í þéttbýli í Sveitar­félag­inu Hornafirði, samkvæmt samþykktu deiliskipulagi eða staðfestu aðal­skipulagi, skal greiða gatnagerðargjald, sbr. 12. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006.
  2. Byggingarleyfisgjald, sbr. 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.
  3. Stofngjald vatnsveitu skv. lögum um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004.
  4. Stofngjald holræsa skv. lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.

2. gr.

Framkvæmdaleyfisgjald og og gjald fyrir skipulagsvinnu.

Gjöld skv. gjaldskrá þessari af framkvæmdum og skipulagsvinnu í Sveitarfélaginu Horna­firði eru:

  1. Framkvæmdaleyfisgjald, sbr. 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  2. Gjald vegna skipulagsvinnu, sbr. 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

3. gr.

Ráðstöfun byggingarleyfis-, gatnagerðar- og framkvæmdaleyfisgjalda
og gjalda vegna skipulagsvinnu.

Gatnagerðargjaldi skal varið til gatnagerðar í sveitarfélaginu og viðhalds gatna og ann­arra gatnamannvirkja. Tekjum sveitarfélagsins vegna gjalds af skipulagsvinnu, bygg­ingar­leyfis, framkvæmdaleyfis, afgreiðslu- og þjónustugjalda skal varið til að standa straum af hluta kostnaðar byggingar- og skipulagsfulltrúa.

4. gr.

Útreikningur gatnagerðargjalds.

Af hverjum fermetra húss greiðist ákveðinn hundraðshluti byggingarkostnaðar sam­kvæmt fermetraverði byggingarvísitölu, eins og hann er hverju sinni samkvæmt útreikn­ingum Hagstofu Íslands á grundvelli laga nr. 42/1987. Allar fjárhæðir í þessari gjald­skrá taka breytingum 1. dag hvers mánaðar í samræmi við breytingu á bygg­ingar­vísitölu.

Gjaldskráin gildir jafnt fyrir leigulóðir og eignarlóðir þar sem sveitarfélagið stendur að gatna­gerð.

Stofngjöld fráveitu og vatnsveitu eru innheimt sérstaklega og ekki innifalin í gatna­gerðar­gjaldi.

Hundraðshluti byggingarkostnaðar ákvarðast sem hér segir:

  

Lágmarksgjald kr.

Íbúðarhúsnæði

5,5%

1.000.000

Par-, rað-, tvíbýlis- og keðjuhús

4,5%

2.000.000

Iðnaðarhúsnæði, hótel, verslanir og skrifstofur

4,2%

2.400.000

Hesthús og önnur gripahús í þéttbýli

3,0%

175.000

Lágmarksgjald skv. 1. mgr. skal aldrei vera hærra en sem nemur 15% af byggingar­kostnaði fermetra í vísitöluhúsi fjölbýlis eins og hann er hverju sinni skv. útreikn­ingum Hagstofu Íslands á grundvelli laga nr. 42/1987, um vísitölu byggingar­kostnaðar. Af viðbyggingum er ekki greitt lágmarksgjald, aðeins er greitt ofan­greint gjald af viðkomandi viðbyggingu.

Við úthlutun lóðar greiðir lóðarleigjandi 100.000 kr. við afhendingu lóðar sú upphæð gengur upp í gatnagerðargjald.

Þegar veitt er byggingarleyfi fyrir endurbyggingu, breytingu eða breyttri notkun húsnæðis þannig að hún færist í hærri gjaldflokk sbr. 1. mgr. skal greiða gatnagerðargjald sem svarar til mismunar hærri og lægri gjaldflokksins. Lóðarhafi, eða byggingarleyfishafi þar sem það á við, á ekki rétt á endurgreiðslu ef bygging færist í lægri gjaldflokk við slíka breytingu.

5. gr.

Undanþágur frá greiðslu gatnagerðargjalds.

Undanþegnar greiðslu gatnagerðargjalds eru eftirtaldar byggingar:

  1. Lagnakjallarar og aðrir gluggalausir kjallarar, sem aðeins er gengið í innan frá.
  2. Óeinangruð smáhýsi, minni en 10 fermetrar, fyrir stærri garðhús er greitt sama gatnagerðargjald og fyrir hesthús.
  3. Óupphituð svalaskýli íbúðarhúsa sem eru 20 m² eða minni.

6. gr.

Heimild til lækkunar eða niðurfellingar gatnagerðargjalds.

Bæjarstjórn getur lækkað eða fellt niður gatnagerðargjald af einstökum lóðum í sveitar­félaginu við sérstakar aðstæður, sbr. ákvæði 6. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006. Bæjarstjórn er heimilt að hækka eða lækka gjaldskrá gatnagerðargjalds um allt að 35% vegna breytilegs kostnaðar við undirbyggingu og frágang gatna eftir hverfum, m.a. vegna kostnaðar við land, jarðvegsdýpi, stærð lóðar við götu, stað­setn­ingu lóðar, verðmæti lóðar, þversnið lóðarfrágangs o.fl.

7. gr.

Eldri samningar og skilmálar um gatnagerðargjald.

Um samninga um gatnagerðargjald af tilteknum lóðum, sem lóðarhafar eða lóðar­eig­endur hafa gert við Sveitarfélagið Hornafjörð fyrir gildistöku gjaldskrár þessarar, svo og skilmálar varðandi gatnagerðargjald, sem bæjarstjórn hefur sett fyrir sömu tíma­mörk og lóðarhafi og lóðareigandi hefur undirgengist, fer eftir hljóðan áður gerðra samn­inga.

8. gr.

Áfangaskipti framkvæmda.

Í þeim tilvikum þegar lóðarhafi hyggst byggja hús, annað en íbúðarhús, í áföngum, getur bæjarstjórn heimilað slíka áfangaskiptingu og þá skal gatnagerðargjald hverju sinni greiðast samkvæmt þeirri samþykkt sem í gildi er þegar byggingarleyfi hvers áfanga er útgefið.

Umsækjandi skal taka það sérstaklega fram í lóðarumsókn að hann ætli að reisa fyrir­hugað mannvirki í áföngum og hvenær hann hyggst hefja framkvæmdir á sér­hverjum byggingar­áfanga.

Verði heimiluð áfangaskipti falla í gjalddaga áætluð gjöld við upphaf hvers byggingar­áfanga í samræmi við áform lóðarhafa við úthlutun lóðarinnar.

9. gr.

Stofngjald fráveitu og vatnsveitu.

Stofngjald holræsa fyrir íbúðarhúsalóð er kr. 80.000. Fyrir aðrar lóðir greiðist kr. 175.000 á hverja tengingu við fráveitukerfi sveitarfélagsins.

Stofngjald vatnsveitu skal innheimt af öllum fasteignum sem tengdar eru vatnsveitu Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Til að heimæð vatnsveitu fáist skal vera búið að tengja fasteign við fráveitu. Gjaldið skal innheimt við veitingu byggingarleyfis eða afhendingu heimæðar. Sama gjald skal greiða við endurnýjun heimæða sem ekki eru í eigu vatns­veitunnar.

9.1 Íbúðarhúsnæði, verslun og þjónusta, heimæð minni en 40 mm 140.000 kr.

9.2 Iðnaðar- og atvinnuhúsnæði, heimæð stærri en 40 mm 250.000 kr.

Stofngjald vatnsveitu byggir á ákvæðum laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 2/2004.

Stofngjald fráveitu byggir á ákvæði laga um uppbygginu og rekstur fráveitu nr. 9/2009.

 

Tengigjöld fráveitu

Gjald kr.

Athugasemd

1

Íbúðarhús

  80.000

 

2

Aðrar lóðir

175.000

Á hverja tengingu

 

Tengigjöld vatnsveitu

  

3

Íbúðarhús, verslun og þjónusta

140.000

minni en 40 mm

4

Iðnaðar- og atvinnuhúsnæði

250.000

stærri en 40 mm

10. gr.

Flokkun bygginga og gjaldskrá.

Innheimta skal byggingarleyfisgjald fyrir hverja þá framkvæmd sem byggingarleyfi er gefið út fyrir.

Byggingarleyfisgjald er grunngjald, að viðbættu gjaldi pr. m³ byggingar. Þó skal ekki innheimta byggingarleyfisgjald fyrir byggingar sem eru 10 m² eða minni, nema um viðbyggingar sé að ræða.

Innifalið í byggingarleyfisgjaldi er lögboðin meðferð byggingarleyfiserinda, lóðarblöð, yfirferð teikninga, útmæling fyrir húsi og hæðarkóta og reglubundið eftirlit, eftir því sem við á.

Samkvæmt gjaldskrá þessari skal greiða byggingarleyfisgjald fyrir útgáfu á bygg­ingar­leyfi sem byggingarfulltrúi/skipulags- og byggingarnefnd samþykkir.

Innifalið í byggingarleyfisgjaldi er ein yfirferð aðaluppdrátta, byggingarleyfi, útmæling fyrir greftri, útmæling og hæðarsetning fyrir uppslætti og útsetning lóðar, byggingar­eftirlit, lögbundnar úttektir, fokheldisvottorð og vottorð um lokaúttekt. Fyrir auka­úttektir greiðist eftir gjaldskrá Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Fyrir byggingarleyfi nýrra húsa, viðbygginga, breytinga húsa, verulegra breytinga innan lóða og samþykki fyrir breyttri notkun greiðist fast gjald kr. 37.716.

Að auki greiðist fyrir hvern fermetra nýbygginga og viðbygginga skv. eftirfarandi:

 

Tegund byggingar/framkvæmdar

Fastagjald kr.

Gjald á m³ kr.

1

Íbúðarhús, bílskúrar

37.716

140

2

Hótel, verslanir, skrifstofur

37.716

140

3

Iðnaðarhús, verkstæði

37.716

99,22

4

Gripahús, hlöður, vélageymslur, tankar, ker, þrær o.s.frv.

37.716

77,44

5

Frístundahús, veiðihús, fjallaskálar o.s.frv.

37.716

280

11. gr.

Undanþágur til lækkunar á byggingarleyfisgjaldi.

Undanþága til lækkunar á byggingarleyfisgjaldi er veitt ef um eftirtalin viðhaldsverkefni sem kalla á byggingarleyfi er að ræða:

  1. Breyting á klæðningu eða gluggum (útlitsbreyting = ¼ til ½ fastagjald).
  2. Endurnýjun á lagnakerfi (breyting á lagnaleið = ¼ fastagjald reiknast á hvert lagnakerfi).
  3. Breyting á burðarvirki (½ fastagjald). Á aðeins við ef verið er að rýra burðarvirki, ef framkvæmd fylgir jafnframt breyting, er greitt fullt gjald.
  4. Byggingarleyfisskyldar framkvæmdir á lóð, svo sem girðingar yfir 1,8 m, bygging sólpalla hærri en 50 sm frá jörðu (¼ fastagjald) o.s.frv.

12. gr.

Gjöld vegna framkvæmdaleyfa.

Samkvæmt gjaldskrá þessari skal greiða gjald fyrir veitingu framkvæmdaleyfa vegna þeirra framkvæmda sem afla þarf framkvæmdaleyfis fyrir.

Gjaldið má ekki vera hærri upphæð en nemur kostnaði við undirbúning og útgáfu leyfisins auk kostnaðar við tilheyrandi eftirlit með framkvæmdum. Lágmarksgjald vegna veitingar framkvæmdaleyfis er kr. 90.000. Innifalinn í framkvæmdaleyfisgjaldi er kostn­aður bæjarins vegna útgáfu og undirbúnings leyfisveitingar auk kostnaðar við eftirlit að undan­gengnum breytingum á skipulagi.

13. gr.

Gjöld vegna skipulagsvinnu.

Samkvæmt gjaldskrá þessari skal greiða gjald fyrir grenndarkynningar og deili­skipulags­breytingar eins og hér segir:

a.

Almenn grenndarkynning vegna byggingar- eða framkvæmdaleyfis

kr.

30.000

b.

Lítil breyting á deiliskipulagsuppdrætti eða lóðarblaði

kr.

65.000

c.

Grenndarkynning vegna breytingar á deiliskipulagi

kr.

30.000

d.

Afgreiðsla deiliskipulagsbreytingar skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga

kr.

90.000

e.

Afgreiðsla deiliskipulagsbreytingar skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga

kr.

120.000

f.

Afgreiðsla nýs deiliskipulags skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga

kr.

120.000

Greitt er fyrir hvern þann lið hér að ofan sem sveitarfélagið þarf að vinna við fulln­aðar­afgreiðslu deiliskipulags eða deiliskipulagsbreytingar. Afgreiðslur hér að ofan inni­fela kostnað við umfjöllun sveitarfélagsins auk auglýsinga um kynningu skipulagsins og gildis­töku. Landeigandi eða framkvæmdaaðili getur óskað eftir því við bæjarstjórn að gerð sé tillaga að deiliskipulagi eða breytingu á deiliskipulagi á hans kostnað. Um ferli slíks deili­skipulags fer skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Framkvæmdaleyfi og skipulagsvinna

Gjald kr.

Athugasemdir

1

Framkvæmdir (efnistökuleyfi)

25.000

Lítið svæði

2

Framkvæmdaleyfi

90.000

Lágmarksgjald

3

Grenndarkynning

30.000

Vegna byggingar- eða rekstrarleyfis

4

Lítil breyting á deiliskipulagi eða lóðarblaði

65.000

Grenndarkynning og lóðarblað

5

Deiliskipulagsbreyting

90.000

Samkvæmt 1. mgr. 43. gr. laga nr. 123/2010

6

Deiliskipulagsbreyting

120.000

Samkvæmt 2. mgr. 43.gr. laga nr. 123/2010

7

Nýtt deiliskipulag

120.000

Samkvæmt 40. og 41. gr. laga nr. 123/2010

8

Breyting á aðalskipulagi

120.000

Viðmiðunargjald

14. gr.

Gjaldskrá.

Greiða skal fyrir þjónustu og leyfisveitingu sem byggingarfulltrúi veitir umfram þá sem innifalin er í byggingarleyfisgjaldi.

 

Gjöld fyrir leyfisveitingar og þjónustu

Kr.

1

Hver endurskoðun aðaluppdrátta

19.300

2

Hver endurskoðun séruppdráttar

  6.300

3

Afgreiðslugjald og endurnýjun leyfis án breytinga

19.300

4

Aukavottorð um byggingarstig og stöðuúttekt

19.300

5

Eignaskiptayfirlýsingar, hver umfjöllun

11.300

6

Gjald fyrir lóðarúthlutun

96.200

7

Gjald fyrir framlengingu lóðarúthlutunar

38.500

8

Breyting á lóðarleigusamningi að beiðni lóðarhafa

  8.000

9

Umsýslugjald vegna þinglýsingar lóðarsamnings er 0,65% af lóðarmati

10

Fyrir breytingu á lóðarblaði eða gerð nýs lóðarblaðs

11.300

11

Húsaleiguúttekt

15.300

12

Útkall byggingarfulltrúa að óþörfu (ath. um tímagjald er að ræða)

  9.500

13

Afgreiðsla stöðuleyfis

19.300

14

Endurnýjun stöðuleyfis

25.700

15

Fyrir hverja auka útsetningu lóðar/húss; hver mæling

19.300

16

Úttekt vegna meistaraskipta

  6.000

17

Úttekt vegna byggingarstjóraskipta

25.700

18

Af viðameiri framkvæmdum er heimilt að innheimta tímavinnugjald af þeirri vinnu sem lagt er út í við gerð meistara- og byggingarstjóraskipta, kr. 9.500 á tímann

19

Leyfi til niðurrifs mannvirkja

15.000

20

Breyting á skráningu

15.300

21

Aðrar leyfisveitingar úttektir og vottorð/vinna sérfræðings

15.000

22

Ljósritun A3 og teikningar í pdf (hvert viðhengi)

    280

15. gr.

Gjalddagar og greiðsluskilmálar.

Gjalddagi 50% gatnagerðargjalds er við lóðarveitingu og gjalddagi eftirstöðva þegar bygg­ingarleyfi er veitt, þó eigi síðar en 6 mánuðum frá lóðarúthlutun. Hafi gjöldin eigi verið greidd innan ofangreinds frests, fellur úthlutun lóðarinnar úr gildi.

Gjalddagi gatnagerðargjalds í öðrum tilvikum en við úthlutun lóðar miðast við útgáfu bygg­ingarleyfis.

Umsækjandi lóðar, sem fengið hefur sömu lóð úthlutað án þess að greiða gatna­gerðar­gjald innan mánaðar, fær lóðinni ekki úthlutað í þriðja sinn, nema fyrir liggi greiðsla gatnagerðargjalds.

Eindagi gjalda skv. samþykkt þessari er 30 dögum eftir gjalddaga.

16. gr.

Ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds.

Lóðarhafi leigulóðar og eigandi eignarlóðar ber ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds.

17. gr.

Endurgreiðsla byggingar- og gatnagerðargjalds.

Byggingarleyfisgjöld eru óendurkræf þótt lóðarúthlutun og byggingarleyfi falli úr gildi, þar sem lagt hefur verið í þá vinnu sem umfjöllun og afgreiðsla krefur, að undanskildum kostnaði við loka- og áfangaúttektir.

Gatnagerðargjald skal endurgreitt í eftirtöldum tilvikum:

  1. Ef lóðarhafi skilar úthlutaðri lóð eða ef lóðarúthlutun er afturkölluð eða fellur niður, sbr. reglur sveitarfélagsins um úthlutun lóða.
  2. Ef gatnagerðargjald hefur verið greitt í tengslum við útgáfu byggingarleyfis, en leyfið fellur úr gildi.

Gatnagerðargjald skal endurgreitt innan 30 daga, vegna endurgreiðslu skv. a-lið, sama gildir um gatnagerðargjald sem lagt hefur verið á í tengslum við útgáfu byggingarleyfis sbr. b-lið, en þá skal gatnagerðargjald endurgreitt innan 30 daga frá því að bygg­ingar­leyfishafi hefur sannanlega krafist endurgreiðslu.

Gatnagerðargjald skal endurgreitt með verðbótum, án vaxta, miðað við breytingu á vísitölu neysluverðs frá því lóðarhafi greiddi gatnagerðargjaldið til endurgreiðsludags.

Um endurgreiðslu fer að öðru leyti skv. 9. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006.

Hafi gjöldin eigi verið greidd innan ofangreinds frests, fellur úthlutun lóðarinnar úr gildi. Umsækjandi lóðar, sem fengið hefur sömu lóð úthlutað á ný og greiðir ekki gatna­gerðar­gjald innan mánaðar, fær ekki úthlutað lóð í þriðja sinn, nema fyrir liggi greiðsla gatna­gerðargjalds. Eindagi gjalda skv. gjaldskrá þessari er 30 dögum eftir gjald­daga.

Af gjaldföllnu gatnagerðargjaldi skulu greiðast dráttarvextir, skv. ákvæðum laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

18. gr.

Ýmis ákvæði.

Öll gjöld önnur en gatnagerðargjald samkvæmt gjaldskrá þessari eru miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar í janúar 2007 (356,3 stig). Endurreikna skal gjöldin í upphafi hvers almanaksárs, á grundvelli vísitölu byggingarkostnaðar í janúar og gilda þau til loka við­komandi árs.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru, ásamt áföllnum vöxtum og kostnaði, tryggð með lögveðsrétti í viðkomandi fasteign og eru aðfararhæf samkvæmt 10. tl. 1. mgr. laga um aðför nr. 90/1989. Séu gjöld ekki greidd á eindaga skulu reiknast dráttarvextir frá gjalddaga, skv. ákvæðum laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

Kostnaður lóðarhafa vegna lóðar sem er skilað eða þegar byggingarleyfi er afturkallað, vegna atriða er varða lóðarhafa, svo sem hönnunar- og rannsóknakostnaður á lóðinni eða framkvæmdir unnar samkvæmt graftrarleyfi áður en byggingarleyfi er gefið út, er ekki endurgreiddur af sveitarfélaginu. Sé lóð afturkölluð eða byggingarleyfi fellt úr gildi eftir að undirstöður eru fullgerðar, eða á síðari stigum byggingarframkvæmda, skal dóm­kveðja tvo matsmenn til að verðleggja þær framkvæmdir sem unnar hafa verið, enda hafi þær verið teknar út og viðurkenndar af byggingarfulltrúa. Kostnað vegna mats­ins greiða sveitarfélagið og lóðarhafi að jöfnu. Sveitarfélagið Hornafjörður skal leysa til sín lóðina með mannvirkjum á grundvelli mats hinna dómkvöddu matsmanna að frá­dreg­inni hlutdeild lóðarhafa í kostnaði vegna matsgerðarinnar.

19. gr.

Heimildarákvæði.

Bæjarstjórn er heimilt að undanþiggja einstök hverfi, götur eða landsvæði ákvæðum 3. gr. að öllu leyti, ef um er að ræða að sveitarfélagið semji við einn og sama fram­kvæmdar­aðila um að taka að sér að byggja öll mannvirki á svæðinu og ganga að fullu frá götum, bifreiðastæðum, opnum svæðum o.s.frv. Í slíkum tilfellum skal fram­kvæmdar­aðili greiða sveitarsjóði sem nemur að minnsta kosti 15% af útreiknuðu saman­lögðu gatnagerðargjaldi til að standa straum af kostnaði við tengigötur. Bæjar­sjóður skal eftir sem áður yfirtaka til rekstrar þær götur sem byggðar eru með framan­greindum hætti.

20. gr.

Samþykkt og gildistaka.

Gatnagerðargjald byggir á lögum um gatnagerðargjald nr. 153/2006 og reglugerð um gatna­gerðargjald nr. 543/1996.

Byggingarleyfis- og þjónustugjöld byggja á lögum um mannvirki nr. 160/2010 og bygg­ingarreglugerð nr. 112/2012.

Framkvæmdaleyfi og gjöld fyrir skipulagsáætlanir byggja á skipulagslögum nr. 123/2010. Gjaldskrá þessi skal endurskoðuð í desember ár hvert.

Gjaldskrá þessi öðlast gildi við birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda. Vegna gatna­gerðargjalds, sem lagt hefur verið á fyrir gildistöku samþykktar þessarar en hefur ekki verið greitt að fullu, skal farið eftir ákvæðum þeirrar gjaldskrá sem álagning gatna­gerðar­gjalds byggði á.

Samþykkt af bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar, 6. mars 2014.

Ásgerður K. Gylfadóttir bæjarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 27. mars 2014