Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 21/2009

Nr. 21/2009 5. janúar 2009
AUGLÝSING
fjármálaráðherra um álagningu opinberra gjalda á árinu 2009.

1. gr.

Skattstjórar skulu eigi síðar en 31. júlí 2009 hafa lokið álagningu opinberra gjalda á menn. Álagningu lögaðila skal vera lokið eigi síðar en 30. október 2009. Álagningu á lögaðila sem fengið hafa heimild til að hafa annað reikningsár til skattskila en almanaksárið skal lokið eigi síðar en sex mánuðum eftir að því reikningsári lýkur.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem sett er með heimild í 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármálaráðuneytinu, 5. janúar 2009.

F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

B deild - Útgáfud.: 19. janúar 2009