Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og að fenginni tillögu bæjarstjórnar Fjallabyggðar eru hér með settar eftirfarandi reglur um umferð í Fjallabyggð: Ólafsfjörður: Við gatnamót Aðalgötu og Ægisgötu verður Aðalgata aðalbraut og biðskylda á Ægisgötu að sunnan og stöðvunarskylda að norðan. Hraðahindrun verður við innkeyrsluna í bæinn sunnan við innkeyrsluna að vallarhúsi Leifturs. Hámarkshraði á hafnarsvæðinu í Ólafsfirði, þ.e. frá Vesturhöfn að vigtarhúsi verður 35 km/klst. Siglufjörður: Við gatnamót Hólavegar og Ártúns hafi Ártún rétt gagnvart Hólavegi þannig að biðskylda verði á Hólavegi báðum megin við gatnamótin. Auglýsing þessi tekur þegar gildi. Með auglýsingu þessari eru numin úr gildi þau ákvæði eldri auglýsinga um umferð í Fjallabyggð (Ólafsfirði/Siglufirði) sem brjóta í bága við auglýsingu þessa. Lögreglustjórinn á Akureyri, 16. maí 2008. Björn Jósef Arnviðarson. |