Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 375/2013

Nr. 375/2013 24. apríl 2013
REGLUGERÐ
um (24.) breytingu á reglugerð nr. 301/1995 um eftirlit með sáðvöru.

1. gr.

9. viðauka við reglugerð nr. 301/1995, með síðari breytingum, er breytt í samræmi við viðauka þessarar reglugerðar.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnar­innar nr. 2011/68/ESB um breytingu á tilskipunum 2003/90/EB og 2003/91/EB um framkvæmdarráðstafanir með tilliti til 7. gr. tilskipana ráðsins 2002/53/EB og 2002/55/EB, að því er varðar þá eiginleika sem athugun skal að lágmarki taka til og lágmarksskilyrði vegna athugana á tilteknum yrkjum nytjaplantna í landbúnaði og grænmetistegunda, sem tekin var inn í III. kafla I. viðauka við EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2013 frá 2. febrúar 2013.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin tekur þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. apríl 2013.

F. h. r.

Halldór Runólfsson.

Eggert Ólafsson.

VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 29. apríl 2013