Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 6/2008

Nr. 6/2008 8. desember 2008
AUGLÝSING
um upplýsingaskiptasamning og tvísköttunarsamning við Mön.

Samningur um upplýsingaskipti um skattamál, samningur til að komast hjá tvísköttun einstaklinga, samningur til að komast hjá tvísköttun fyrirtækja sem reka skip eða loftför í flutningum á alþjóðaleiðum og samningur um aðgang að framkvæmd gagnkvæms samkomulags í tengslum við leiðréttingu á hagnaði tengdra fyrirtækja, sem gerðir voru milli Íslands og Manar í Ósló 30. október 2007, öðlast gildi 28. desember 2008.

Samningurinn um upplýsingaskipti um skattamál er birtur sem fylgiskjal 1 með auglýsingu þessari, samningurinn til að komast hjá tvísköttun einstaklinga sem fylgiskjal 2, samningurinn til að komast hjá tvísköttun fyrirtækja sem reka skip eða loftför í flutningum á alþjóðaleiðum sem fylgiskjal 3 og samningurinn um aðgang að framkvæmd gagnkvæms samkomulags í tengslum við leiðréttingu á hagnaði tengdra fyrirtækja sem fylgiskjal 4.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Utanríkisráðuneytinu, 8. desember 2008.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.

Benedikt Jónsson.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

C deild - Útgáfud.: 31. desember 2008