Samkvæmt 2. og 4. mgr. 4. gr. laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr. 49/1997 með síðari breytingum, hefur ráðherra þann 16. desember 2011 staðfest tillögur hættumatsnefndar Mosfellsbæjar að hættumati vegna ofanflóða fyrir Mosfellsbæ. Hættumatið hefur verið auglýst og kynnt í samræmi við 2. mgr. 4. gr. laga nr. 49/1997, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 505/2000 um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða og gerð bráðabirgðahættumats. Hættumatið öðlast þegar gildi. Umhverfisráðuneytinu, 12. janúar 2012. F. h. r. Magnús Jóhannesson. Sigríður Auður Arnardóttir. |