Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1135/2012

Nr. 1135/2012 6. desember 2012
AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar Völuteigur 25-29, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 5. desember 2012 samþykkt tillögu að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni Völuteigur 25–29, sem hlotið hefur meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt 25. október 2012 með athugasemdafresti til og með 23. nóvember 2012.
Breytingin felst í því að vesturmörk lóðarinnar færast til á parti og verða samsíða húsinu. Við þetta stækkar lóðin um þríhyrning sem er 315,5 m².
Skipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem lög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 6. desember 2012,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 20. desember 2012