Leirvogsá, göngubrú. Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997, samþykkti bæjarstjórn Mofellsbæjar þann 19. desember og skipulagsráð Reykjavíkurborgar þann 20. desember 2007 deiliskipulag fyrir göngubrú yfir Leirvogsá við Fitjar. Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög mæla fyrir um. Skipulagið öðlast þegar gildi. Framnesvegur 16. Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997, samþykkti skipulagsráð Reykjavíkurborgar þann 30. janúar 2008 breytingu á deiliskipulagi Framnesreits vegna lóðarinnar að Framnesvegi 16. Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög mæla fyrir um. Breytingin öðlast þegar gildi. Skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar, 18. febrúar 2008. Ólöf Örvarsdóttir. |