1. gr. Eftirfarandi breyting verður á fjárhæðum vegna dagpeninga innanlands í kafla 3.2 Frádráttur á móti dagpeningum: Fyrir gistingu og fæði í einn sólarhring | 24.900 | Fyrir gistingu í einn sólarhring | 14.100 | Fyrir fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag | 10.800 | Fyrir fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag | 5.400 |
2. gr. Auglýsing þessi, sem sett er með stoð í 118. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast gildi og kemur til framkvæmda frá og með 1. október 2014. Ríkisskattstjóri, 1. október 2014. Skúli Eggert Þórðarson. Ingvar J. Rögnvaldsson. |