Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 504/2015

Nr. 504/2015 20. maí 2015

AUGLÝSING
um staðfestingu námsbrautarlýsinga framhaldsskóla.

1. gr.

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skv. 23. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008 staðfest eftirfarandi námsbrautarlýsingar. Staðfesting námsbrautarlýsinga felur í sér að lýsing á uppbyggingu námsbrauta, tengslum við atvinnulíf og/eða önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep, inntökuskilyrðum og skilyrðum um framvindu náms, grunnþáttum og lykilhæfni og námsmati sé í samræmi við aðalnámskrá framhaldsskóla. Hinar staðfestu námsbrautarlýsingar teljast þar með hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla, sbr. auglýsingu nr. 674/2011.

Staðfestingin tekur ekki til einstakra áfangalýsinga.

Skólar bera ábyrgð á að áfangalýsingar námsbrauta og kennsla falli að hæfniviðmiðum brautar og þeim ramma sem aðalnámskrá setur skólastarfi.

2. gr.

Dæmabraut mennta- og menningarmálaráðuneytis:

Stúdentsbraut – bóknám – hæfniþrep 3 (15-82-3-6)

Brautir til stúdentsprófs:

Alþjóðabraut, stúdent – hæfniþrep 3 (15-44-3-6)

Félagsfræðabraut, stúdent – hæfniþrep 3 (15-61-3-6)

Félags- og hugvísindabraut, stúdent – hæfniþrep 3 (15-56-3-6)

Félagsvísindabraut, stúdent – hæfniþrep 3 (15-48-3-6)

Fjölgreinabraut, stúdent – hæfniþrep 3 (15-45-3-6)

Fjölgreinabraut, stúdent – hæfniþrep 3 (15-63-3-6)

Hagfræðibraut, stúdent – hæfniþrep 3 (15-46-3-6)

Hugvísindabraut, stúdent – hæfniþrep 3 (15-67-3-6)

Íþróttabraut, stúdent – hæfniþrep 3 (15-81-3-6)

Listnámsbraut, stúdent – hæfniþrep 3 (15-14-3-7)

Listnáms- og hönnunarbraut – myndlistarlína, stúdent – hæfniþrep 3 (15-84-3-7)

Listnáms- og hönnunarbraut – textíllína, stúdent – hæfniþrep 3 (15-57-3-6)

Náttúrufræðibraut, stúdent – hæfniþrep 3 (15-38-3-6)

Náttúrufræðibraut, stúdent – hæfniþrep 3 (15-64-3-6)

Náttúruvísindabraut, stúdent – hæfniþrep 3 (15-47-3-6)

Náttúruvísindabraut, stúdent – hæfniþrep 3 (15-59-3-6)

Nýsköpunar- og listabraut, stúdent – hæfniþrep 3 (15-60-36-6)

Viðskiptabraut, stúdent – hæfniþrep 3 (15-41-3-6)

Viðskipta- og hagfræðibraut, stúdent – hæfniþrep 3 (15-58-3-6)

Viðskipta- og hagfræðibraut, stúdent – hæfniþrep 3 (15-68-3-6)

Brautir með framhaldsskólapróf sem námslok:

Nýsköpunar- og tæknibraut, framhaldsskólapróf – hæfniþrep 2 (15-2-2-3)

Starfsbrautir fyrir fatlaða:

Starfsbraut, starfsbraut – hæfniþrep 1 (15-23-1-12)

Starfsbraut, starfsbraut – hæfniþrep 1 (15-49-1-12)

Starfsbraut, starfsbraut – hæfniþrep 1 (15-80-1-12)

3. gr.

Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 20. maí 2015.

Illugi Gunnarsson.

Ásta Magnúsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 8. júní 2015