Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 300/2014

Nr. 300/2014 17. mars 2014
REGLUGERÐ
um þvotta- og hreinsiefni.

1. gr.

Gildistaka tiltekinna gerða Evrópubandalagsins.

Eftirfarandi reglugerðir sem vísað er til í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, skulu öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samn­ings­ins:

 

a)

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 648/2004 um þvotta- og hreinsi­efni, sem vísað er til í tölulið 12u, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 144/2005, þann 2. desember 2005. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 38 frá 26. júní 2008, bls. 84-118.

 

b)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 907/2006 varðandi breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 648/2004 um þvotta- og hreinsiefni, sem vísað er til í tölulið 12u, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 15/2007, þann 27. apríl 2007. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 11 frá 19. febrúar 2009, bls. 57-62.

 

c)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 551/2009 frá 25. júní 2009 um breytingu V. og VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 648/2004 um þvotta- og hreinsiefni (undanþága að því er varðar yfirborðsvirk efni), sem vísað er til í tölulið 12u, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 66/2010, þann 11. júní 2010. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 56 frá 7. október 2010, bls. 234-237.

 

d)

Reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1336/2008 frá 16. desember 2008 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 648/2004 í því skyni að aðlaga hana að reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna, sem vísað er til í tölulið 12u, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 106/2012, þann 15. júní 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 54 frá 27. september 2012, bls. 554-555.

 

e)

Reglugerð (ESB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 259/2012 frá 14. mars 2012 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 648/2004 að því er varðar notkun fosfata og annarra fosfórsambanda í tauþvottaefni og uppþvottavélaefni ætlað neytendum, sem vísað er til í tölulið 12u, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 140/2013, þann 15. júlí 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 56 frá 10. október 2013, 2013/EES/56/58 bls. 914-919.

2. gr.

Hlutverk Umhverfisstofnunar.

Umhverfisstofnun gegnir hlutverki lögbærs yfirvalds sbr. 5., 8., 9. og 10. gr. og II. við­auka reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 648/2004 um þvotta- og hreinsi­efni.

3. gr.

Merkingar.

Merkingar þvotta- og hreinsiefna, sbr. 11. gr. reglugerðar (EB) nr. 648/2004, skulu vera á íslensku, ensku eða Norðurlandamáli öðru en finnsku.

4. gr.

Eftirlit.

Um eftirlit með reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla efnalaga nr. 61/2013. Heil­brigðisnefndir sveitarfélaga hafa eftirlit með meðferð, notkun og merkingum efna í starfs­leyfis­skyldri starfsemi sem heyrir undir þau starfsleyfi sem nefndin gefur út á grund­velli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, sbr. 1. mgr. 6. gr. efna­laga.

5. gr.

Viðurlög.

Um brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar fer samkvæmt XIV. kafla efnalaga.

6. gr.

Innleiðing tiltekinna gerða Evrópubandalagsins.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirfarandi EES-gerðum:

 

a)

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 648/2004 um þvotta- og hreinsi­efni.

 

b)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 907/2006 varðandi breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 648/2004 um þvotta- og hreinsiefni.

 

c)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 551/2009 frá 25. júní 2009 um breytingu á V. og VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 648/2004 um þvotta- og hreinsiefni (undanþága að því er varðar yfirborðsvirk efni).

 

d)

Reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1336/2008 frá 16. desember 2008 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 648/2004 í því skyni að aðlaga hana að reglu­gerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna.

 

e)

Reglugerð (ESB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 259/2012 frá 14. mars 2012 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 648/2004 að því er varðar notkun fosfata og ann­arra fosfórsambanda í tauþvottaefni og uppþvottavélaefni ætluðu neytendum.

7. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. og 11. tölul. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 708/2008, um þvotta- og hreinsiefni.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 17. mars 2014.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

B deild - Útgáfud.: 31. mars 2014