Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1178/2011

Nr. 1178/2011 21. desember 2011
REGLUGERÐ
um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á rjúpum.

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum samkvæmt viðauka IV A við tollalög númer 88/2005, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Tollskrárnr.

kg

%

kr./kg

0208.9003

Rjúpur, frystar

01.01.-31.12.12

ótilgr.

0

0

Tímabil þau sem tilgreind eru miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabils.

3. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 509/2004 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2012.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 21. desember 2011.

Jón Bjarnason.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.

B deild - Útgáfud.: 22. desember 2011