Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1195/2008

Nr. 1195/2008 23. desember 2008
REGLUGERÐ
um (3.) breytingu á reglugerð nr. 1112/2006 um stofnanaþjónustu fyrir aldraða.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr.:

  1. 1. málsl. a-liðar 1. mgr. orðast svo: Tekjur umfram 98.640 kr. skv. C-lið 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skulu teljast til tekna við útreikning á vistunarframlagi skv. 21. gr., sbr. og 22. gr. laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra.
  2. Í stað „1.200.000“ í 2. málsl. b-liðar 1. mgr. kemur: 1.315.200.
  3. 2. málsl. 2. mgr. 3. gr. fellur brott.

2. gr.

Í stað „59.311 kr.“ í 1. málsl. 1. mgr. 5. gr. kemur: 65.005 kr.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 29. gr. laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2009.

Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 23. desember 2008.

Jóhanna Sigurðardóttir.

Ágúst Þór Sigurðsson.

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2008