Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 879/2012

Nr. 879/2012 26. október 2012
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 936/2011, um lækningatæki til sjúkdómsgreiningar í glasi.

1. gr.

Við skrá A í II. viðauka bætist ný málsgrein er orðast svo:

greiningarpróf á afbrigði Creutzfeldt-Jakobs-sjúkdómsins fyrir blóðskimun, sjúkdóms­greiningu og staðfestingu.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 14. gr. laga um lækningatæki, nr. 16/2001, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Reglugerð þessi er sett með hliðsjón af tilskipun 2011/100/ESB, um breytingar á tilskipun nr. 98/79/EB um lækningatæki til sjúkdómsgreiningar í glasi.

Velferðarráðuneytinu, 25. október 2012.

Guðbjartur Hannesson.

Vilborg Ingólfsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 29. október 2012