Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 810/2014

Nr. 810/2014 28. ágúst 2014
SAMÞYKKT
um afgreiðslur byggingarnefndar Seyðisfjarðarkaupstaðar.

1. gr.

Umhverfisnefnd Seyðisfjarðarkaupstaðar fer með hlutverk byggingarnefndar Seyðis­fjarðar­kaupstaðar, sbr. 7. gr. laga um mannvirki og samþykkt nr. 622/2013 um stjórn Seyðisfjarðar­kaupstaðar.

2. gr.

Byggingarfulltrúinn á Seyðisfirði fer með verkefni sem mælt er fyrir um í lögum nr. 160/2010 um mannvirki og ákvæðum í þeim reglugerðum sem settar eru á grundvelli laganna, þar á meðal útgáfu byggingarleyfa.

3. gr.

Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis af hálfu byggingarfulltrúa samkvæmt III. kafla laga um mannvirki er að umhverfisnefnd Seyðisfjarðarkaupstaðar hafi samþykkt útgáfuna.

4. gr.

Byggingarfulltrúinn getur haft samráð við umhverfisnefnd Seyðisfjarðarkaupstaðar um hvert það mál sem hann telur að varði verksvið nefndarinnar.

Byggingarfulltrúinn skal leita samþykkis umhverfisnefndar Seyðisfjarðarkaupstaðar áður en byggingarleyfi er veitt, varði breyting á mannvirki útlit þess og form, nema breyting sé óveruleg, sbr. 5. mgr. 9. gr. laga um mannvirki.

5. gr.

Um málsmeðferð gilda að öðru leyti ákvæði sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, laga um mannvirki, nr. 160/2010, skipulagslaga, nr. 123/2010, stjórnsýslulaga, nr. 37/1993 og sam­þykkt um stjórn Seyðisfjarðarkaupstaðar, nr. 622/2013, eftir því sem við á.

6. gr.

Samþykkt þessi, sem bæjarstjórn Seyðisfjarðarkaupstaðar hefur sett samkvæmt ákvæð­um 7. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 28. ágúst 2014.

F. h. r.

Vigdís Sigurðardóttir.

Hafsteinn Pálsson.

B deild - Útgáfud.: 11. september 2014