Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga þann 18. febrúar 2009 samþykkt deiliskipulag tengivegar frá gatnamótum við Þverholt að Köldukvísl við Leirvogstungu. Deiliskipulagið kveður á um breytingar á legu og útfærslu Skeiðholts, væntanlega legu Tunguvegar og útfærslur gatnamóta. Það fjallar einnig um göngu- og reiðstíga, brýr yfir Varmá og Köldukvísl og undirgöng fyrir gangandi og ríðandi umferð. Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast það þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 15. september 2009, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |