Eignamat í árslok. Samkvæmt 2. tölul. 73. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal telja búpening til eignar með verði er ríkisskattstjóri ákveður til eins árs í senn. Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 213/2001, um skattalega meðferð á bústofnsbreytingu og kaupverði lífdýra í landbúnaði, skal færa bústofn allan í ársbyrjun á bústofnsskýrslu með því verði sem ríkisskattstjóri ákveður sbr. framangreint. Ríkisskattstjóri hefur ákveðið eftirfarandi mat á búpeningi í árslok 2014, álagningarárið 2015,vegna bústofnsskýrslu fyrir það álagningarár: | | kr. | Mjólkurkýr | | 113.000 | Holdakýr og naut | | 120.000 | Kvígur, 1 1/2 árs og eldri | | 91.000 | Geldneyti | | 65.000 | Kálfar, yngri en 1/2 árs | | 14.000 | Ær og sauðir | | 7.800 | Hrútar | | 12.100 | Gemlingar | | 7.000 | Geitur | | 3.900 | Hross á 14. vetri og eldri | | 18.000 | Hross á 5. – 13. vetri | | 36.000 | Fulltamin reiðhross á 5. – 13. vetri | | 150.000 | Önnur nýtanleg reiðhross | | 75.000 | Verðlaunahross á 5. – 13. vetri | | 210.000 | Kynbótahestar á 5. – 13. vetri | | 300.000 | Verðlaunaðir kynbótahestar á 5. – 13. vetri | | 400.000 | Tryppi á 2. – 4. vetri | | 12.000 | Folöld | | 8.500 | Hænsni, eldri en 6 mánaða | | 940 | Varphænsni 6 mánaða og yngri | | 635 | Kjúklingar | | 235 | Endur | | 820 | Gæsir | | 1.640 | Kalkúnar | | 2.460 | Gyltur | | 37.000 | Geltir | | 55.000 | Grísir | | 8.850 | Kanínur | | 5.000 | Minkar: | Karldýr | 7.500 | | Kvendýr | 5.000 | | Hvolpar | 0 | Refir: | Karldýr og kvendýr | 6.000 | | Hvolpar | 0 | Önnur ótilgreind dýr nýtt í rekstri | | 3.900 |
Reykjavík, 9. desember 2014. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri. |