Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 665/2013

Nr. 665/2013 10. júlí 2013
REGLUGERÐ
um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014.

1. gr.

Almenn skilyrði fyrir úthlutun aflamarks.

Úthluta skal aflamarki til fiskiskipa sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  1. Hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fisk­veiða, með síðari breytingum, við lok umsóknarfrests.
  2. Eru skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2013.
  3. Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2013. Miðað skal við lögheimili einstaklinga samkvæmt þjóð­skrá og heimilisfang lögaðila samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.

Þetta skilyrði á þó ekki við ef einstaklingur eða lögaðili gera út fleiri en eitt fiskiskip sem skráð eru í fleiri en einu byggðarlagi. Í þeim tilvikum er heimilt að úthluta aflamarki byggðarlaga til fiskiskipa, sem uppfylla skilyrði a- og b-liðar og eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í öðru byggðarlagi en umsókn um byggða­kvóta beinist að, ef þeir stunda einnig útgerð með skip sem skráð eru í því byggðar­lagi sem þeir hafa heimilisfang í.

2. gr.

Sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflamarks innan einstakra byggðarlaga.

Ráðherra getur heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórna að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflamarks í einstökum byggðarlögum er víkja frá eða eru til viðbótar hinum almennu skilyrðum enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga.

3. gr.

Málsmeðferð á tillögum sveitarstjórna, staðfesting o.fl.

Ráðuneytið skal leita eftir afstöðu sveitarstjórna til þess hvort þær óski eftir að setja sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflamarksins innan einstakra byggðarlaga. Sveitarstjórnir skulu hafa fjögurra vikna frest til að senda ráðuneytinu tillögur sínar.

Eftir að tillögur sveitarstjórna hafa borist skulu þær birtar með aðgengilegum hætti, svo sem á vefsíðu ráðuneytisins, eigi síðar en sjö dögum áður en tekin verður afstaða til þeirra.

Ef fallist verður á tillögur sveitarstjórna um slík skilyrði staðfestir ráðuneytið tillögurnar, auglýsir þær í B-deild Stjórnartíðinda og felur Fiskistofu að úthluta aflamarki byggðar­lagsins samkvæmt þeim. Berist tillögur sveitarstjórna ekki innan áðurnefnds frests eða ef ráðherra fellst ekki á tillögur sveitarstjórna fer um úthlutun aflamarks einstakra byggðarlaga til fiskiskipa samkvæmt 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fisk­veiða með síðari breytingum og ákvæðum þessarar reglugerðar.

4. gr.

Viðmiðanir um úthlutun aflamarks til einstakra fiskiskipa.

Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðar­lagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir sam­kvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tíma­bilinu 1. september 2012 til 31. ágúst 2013. Komi minna en 100 þorskígildiskíló í hlut fiski­skips samkvæmt framangreindum reglum fellur hlutur til þess niður og skiptist hlutur þess milli annarra fiskiskipa frá sama byggðarlagi sem uppfylla skilyrði fyrir úthlutun í sam­ræmi við skiptingu samkvæmt úthlutunarreglum.

Afli af fiskiskipum sem landað er í byggðarlagi af bátum sem ekki eru skráðir innan viðkomandi byggðarlags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.

Réttindi til úthlutunar fylgja skipi, nema ef eigandi eða leigutaki fiskiskips, sbr. 1. gr. hefur endurnýjað fiskiskip sitt á því viðmiðunartímabili sem fram kemur í 1. mgr. og flutt aflahlutdeildir af eldra skipinu yfir á endurnýjaða skipið getur hann í umsókn sinni óskað eftir að við úthlutun aflamarks skv. 1. mgr. sé tekið tillit til landaðs afla eldra skips umsækjanda í sömu hlutföllum og nemur þeim aflahlutdeildum sem hafa verið fluttar milli skipanna.

Ef fiskiskip er endurnýjað eftir að skipting aflamarks hefur farið fram samkvæmt 1. mgr. en áður en uppfyllt hafa verið skilyrði samkvæmt 6. gr. er heimilt að óska eftir að flytja rétt til úthlutunar aflamarks af eldra skipinu yfir á endurnýjaða skipið, enda hafi verið gerður fyrirvari þess efnis í kaupsamningi eða afsali, hafi skip verið selt á því tímamarki.

5. gr.

Framkvæmd úthlutunar.

Fiskistofa annast úthlutun aflamarks, sem kemur í hlut einstakra byggðarlaga, til fiski­skipa og skal auglýsa eftir umsóknum útgerða í a.m.k. tveimur dagblöðum og á vef­síðu Fiskistofu: www.fiskistofa.is. Í umsóknum skulu koma fram upplýsingar sem Fiski­stofa ákveður og skal umsóknum skilað á því formi sem stofnunin ákveður. Umsóknar­frestur skal vera tvær vikur. Fiskistofa annast mat og úrvinnslu umsókna og skal svara öllum umsóknum svo fljótt sem unnt er.

Ákvarðanir Fiskistofu varðandi úthlutun samkvæmt þessari grein er heimilt að kæra til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Kærufrestur er tvær vikur frá tilkynningu Fiski­stofu um ákvörðun og skal úthlutun ekki fara fram fyrr en að þeim fresti liðnum. Skal ráðuneytið úrskurða um kærur innan tveggja mánaða.

6. gr.

Löndun til vinnslu.

Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan hlutaðeigandi byggðarlaga á tímabilinu frá 1. september 2013 til 31. ágúst 2014. Aflinn skal nema, í þorskígildum talið, tvöföldu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari. Eigandi fiskiskips skal gera skriflegan samning við fiskkaupanda um magn sem landað verður til vinnslu hjá viðkomandi vinnsluaðila, þar sem fram kemur að vinnsluaðili skuldbindi sig til að vinna aflann og skal bæjar- eða sveitarstjórn árita samninginn til staðfestingar. Úthlutun aflamarks fer fram á grundvelli vigtarnóta sem borist hafa Fiskistofu og skal úthlutun til þeirra ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði er uppfyllt. Miða skal við allar botnfiskaflategundir sem gefinn hefur verið út þorskígildisstuðull fyrir. Einnig er það skilyrði fyrir úthlutun að ekki hafi verið flutt meira aflamark í þorskígildum talið á fiskveiðiárinu 2013/2014 frá viðkomandi fiskiskipum en flutt hefur verið til þeirra þegar afhending aflamarks á sér stað. Afla sem boðinn er upp á fiskmarkaði telst ekki hafa verið landað til vinnslu samkvæmt þessari grein. Þá er einungis heimilt að meta til viðmiðunar samkvæmt þessari grein landaðan afla sem ekki hefur áður verið metinn til úthlutunar byggðakvóta.

Með vinnslu skv. 1. mgr. er átt við flökun, flatningu, frystingu, söltun eða herslu.

Ef eigandi eða leigutaki fiskiskips, sbr. 1. gr. hefur endurnýjað fiskiskip sitt eftir að lokið er því viðmiðunartímabili sem fram kemur í 1. mgr. 4. gr. en áður en uppfyllt hafa verið skilyrði samkvæmt þessari grein og eftirstöðvar á rétti til úthlutunar skv. 5. mgr. 4. gr. verið flutt af eldra skipinu yfir á endurnýjaða skipið, sbr. 3. mgr. 4. gr., skal við mat á hvort uppfyllt eru skilyrði samkvæmt þessari grein einnig heimilt að miða við landaðan afla beggja skipanna í viðkomandi byggðarlagi.

Fiskistofu er heimilt, að fengnu samþykki ráðuneytisins, að afhenda aflamark fiskiskips út á afla annars skips í eigu eða leigu sama lögaðila. Jafnframt er heimilt, að fengnu samþykki ráðuneytisins, að flytja rétt til úthlutunar aflamarks milli skipa í eigu eða leigu sama lögaðila.

Ráðherra er heimilt, að fengnum rökstuddum tillögum sveitarstjórnar, að víkja frá ákvæðum þessarar greinar enda sé það gert á grundvelli málefnalegra og staðbundinna ástæðna. Um málsmeðferð og staðfestingu tillagna sveitarstjórna samkvæmt þessari grein skulu gilda ákvæði 3. gr.

Fiskistofu er heimilt samkvæmt beiðni útgerðaraðila að úthluta aflamarki fyrir fisk­veiði­árið í fimm áföngum, 1/5 hverju sinni enda séu skilyrði um landað magn til vinnslu samkvæmt ákvæðum þessarar greinar uppfyllt í sama hlutfalli á sama tíma. Hafi skilyrði fyrir úthlutun aflamarks til einstakra fiskiskipa á grundvelli reglugerðar þessarar ekki verið uppfyllt að fullu í lok þess tímabils sem fram kemur í 1. mgr. þessarar greinar, fellur niður réttur til aflamarks í hlutfalli við það sem upp á vantar að skilyrði séu uppfyllt. Takist ekki að úthluta öllu aflamarki viðkomandi skips fyrir lok fiskveiðiársins er Fiski­stofu heimilt að úthluta áunnu aflamarki fiskveiðiársins 2013/2014 á fiskveiðiárinu sem hefst 1. september 2014, enda hafi viðkomandi skip ekki flutt meira aflamark frá skipinu en til þess í lok fiskveiðiársins á undan.

7. gr.

Lágmarksverð.

Verð fyrir afla sem landað er til vinnslu til að uppfylla skilyrði 6. gr. skal ekki vera lægra en það verð sem ákveðið er sem viðmiðunarverð af Verðlagsstofu skiptaverðs.

8. gr.

Tryggingar fyrir greiðslum.

Heimilt er eigendum og útgerðum fiskiskipa að krefja vinnslustöðvar um tryggingar fyrir greiðslu afla sem landað er í byggðarlögum samkvæmt 6. gr., t.d. í formi banka­ábyrgðar.

9. gr.

Framsal.

Framsal aflamarks sem úthlutað er samkvæmt reglugerð þessari er óheimilt en þó skulu heimil jöfn skipti á aflamarki í þorskígildum talið. Framsal aflamarks skal þó vera heimilt hafi fiskiskip efnt löndunar- og vinnsluskyldu í samræmi við 6. gr.

10. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 10. júlí 2013.

Sigurður Ingi Jóhannsson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.

B deild - Útgáfud.: 12. júlí 2013