Samkvæmt 2. mgr. 14. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, hefur ráðherra þann 4. september 2009 staðfest breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024 frá 20. desember 2002. Breytingin felst í tvöföldun Suðurlandsvegar, að mestu í núverandi vegstæði frá Norðlingaholti í Reykjavík að vesturmörkum Sveitarfélagsins Ölfuss með tveimur aðskildum akreinum í hvora átt ásamt mislægum gatnamótum. Skilgreining vegarins í svæðisskipulaginu breytist úr „Aðrar stofnbrautir, svæðisbundnar tengibrautir og svæðisvegir til bráðabirgða“ í „Stofnbrautir með mislæg gatnamót“. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur málsmeðferð verið í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 og Skipulagsstofnun yfirfarið erindið og sent ráðherra til staðfestingar. Breyting þessi öðlast þegar gildi. Umhverfisráðuneytinu, 4. september 2009. F. h. r. Magnús Jóhannesson. Logi Kjartansson. |