Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 97/2012

Nr. 97/2012 10. janúar 2012
REGLUGERÐ
um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús.

1. gr.

Almenn ákvæði.

Með reglugerð þessari eru sett ákvæði um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðana­skipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993.

2. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr. Gerðirnar, ásamt viðaukum, eru birtar sem fylgiskjöl 1-13 við reglugerð þessa:

a) ákvörðun ráðsins 2010/639/SSUÖ (sameiginleg stefna í utanríkis- og öryggismálum) frá 25. október 2010 um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum embættismönnum í Belarús, sbr. fylgiskjal 1, eins og henni var breytt með:

  1. ákvörðun ráðsins 2011/69/SSUÖ frá 31. janúar 2011 um breytingu á ákvörðun ráðsins 2010/639/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum embættismönnum í Belarús, sbr. fylgiskjal 2;
  2. ákvörðun ráðsins 2011/357/SSUÖ frá 20. júní 2011 um breytingu á ákvörðun 2010/639/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum embættismönnum í Belarús, sbr. fylgiskjal 3;
  3. ákvörðun ráðsins 2011/666/SSUÖ frá 10. október 2011 um breytingu á ákvörðun 2010/639/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Belarús, sbr. fylgiskjal 4.

Framangreindum ákvörðunum fylgja viðaukar með listum yfir aðila sem landgöngubann og frysting fjármuna eiga við um. Viðaukarnir eru ekki birtir hér með en þess í stað vísast í I. viðauka og I. viðauka A við reglugerð ráðsins (EB) nr. 765/2006 að neðan, eins og henni hefur verið breytt, sem skulu eiga við þessar ákvarðanir að breyttu breytanda.

b) Reglugerð ráðsins (EB) nr. 765/2006 frá 18. maí 2006 um þvingunaraðgerðir gegn Lukashenko forseta og tilteknum embættismönnum í Belarús, sbr. fylgiskjal 5, eins og henni var breytt með:

  1. reglugerð ráðsins (EB) nr. 646/2008 frá 8. júlí 2008 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir gegn Lukashenko forseta og tilteknum embættismönnum í Belarús, sbr. fylgiskjal 6;
  2. reglugerð ráðsins (ESB) nr. 84/2011 frá 31. janúar 2011 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir gegn Lukashenko forseta og tilteknum embættismönnum í Belarús, sbr. fylgiskjal 7;
  3. reglugerð ráðsins (ESB) nr. 588/2011 frá 20. júní 2011 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir gegn Lukashenko forseta og tilteknum embættismönnum í Belarús, sbr. fylgiskjal 8;
  4. reglugerð ráðsins (ESB) nr. 999/2011 frá 10. október 2011 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús, sbr. fylgiskjal 9.

Uppfærðir viðaukar við reglugerð ráðsins (EB) nr. 765/2006, eins og henni hefur verið breytt, fylgja:

I. viðauki (Annex I): Listi yfir einstaklinga og lögaðila eða stofnanir skv. 1., 2. og 4. mgr. 2. gr. (frysting fjármuna), sbr. fylgiskjal 10;
I. viðauki A (Annex IA): Listi yfir einstaklinga og lögaðila, rekstrareiningar eða stofnanir skv. 1., 2. og 5. mgr. 2. gr. (frysting fjármuna), sbr. fylgiskjal 11;
II. viðauki (Annex II): Vefsetur með upplýsingum um lögbær stjórnvöld skv. 3. gr., 2. mgr. 4. gr. og 5. gr. og heimilisfang fyrir tilkynningar til framkvæmda­stjórnar Evrópusambandsins, sbr. fylgiskjal 12;
III. viðauki (Annex III): Listi yfir búnað sem mætti nota til bælingar innanlands skv. a- og b-liðum 1. gr., sbr. fylgiskjal 13.

Sameiginlegur hergagnalisti Evrópusambandsins, sem vísað er til í 1. gr. b reglugerðar ráðsins (EB) nr. 765/2006, er birtur sem viðauki (Annex) við fylgiskjal 2 við reglugerð um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu nr. 800/2011.

Viðaukar við framangreindar gerðir eru birtir á frummáli, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.

Heildarlisti yfir einstaklinga og lögaðila sem fjárhagslegar þvingunaraðgerðir gilda um er á eftirfarandi vefsíðu:

http://ec.europa.eu/external_relations/cfsp/sanctions/list/version4/global/e_ctlview.html.

3. gr.

Aðlögun.

Gerðir skv. 2. gr. skulu aðlagaðar með eftirfarandi hætti:

a)

ákvæði varðandi ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða aðildarríki Evrópusambandsins („EB“, „ESB“, „bandalagsins“ eða „sameiginlega markaðarins“) eiga við um íslenska ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða Ísland, eftir því sem við á;

b)

ákvæði um tilkynningar eða skýrslugerðir til aðildarríkja Evrópusambandsins eða stofnana gilda ekki. Hið sama á við um ákvæði um gildistöku eða hvenær gerðir skuli koma til framkvæmda;

c)

tilvísanir í gerðir, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samningsins), eiga við um þau ákvæði íslensks réttar sem innleiða þær gerðir, eftir því sem við á;

d)

tilvísanir í gerðir, sem eru ekki hluti EES-samningsins, eiga við um hliðstæð ákvæði íslensks réttar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði tollalaga nr. 88/2005;

e)

tilvísanir í eldri ákvæði um þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins eiga við um eldri íslensk ákvæði, eftir því sem við á;

f)

vefsetur með upplýsingum um lögbær stjórnvöld á Íslandi er: www.utn.is/thvingunaradgerdir.

4. gr.

Tilkynning.

Birting lista yfir aðila, sem nefndir eru í gerðum skv. 2. gr., skal skoðast sem tilkynning til þeirra um að þær þvingunaraðgerðir sem kveðið er á um í gerðunum beinist gegn þeim og er þeim bent á að þeir geti sótt um vissar undanþágur til utanríkisráðuneytisins eða óskað eftir afskráningu af listum, telji þeir sig ranglega skráða.

5. gr.

Undanþágur frá þvingunaraðgerð.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum. Hann getur m.a. heimilað að efndir séu samningar eða að fullnægt sé öðrum réttindum og skyldum, sem fara í bága við reglugerð þessa, en stofnuðust fyrir gildistöku hennar.

6. gr.

Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.

7. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús nr. 902/2009.

Utanríkisráðuneytinu, 10. janúar 2012.

Össur Skarphéðinsson.

Einar Gunnarsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 2. febrúar 2012