Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1089/2009

Nr. 1089/2009 30. desember 2009
REGLUR
um skattmat vegna tekna af landbúnaði árið 2010.

Eftirfarandi reglur um skattmat tekna af landbúnaði á árinu 2010 eru settar skv. 118. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, sbr. og 2. tölul. B-liðar 17. gr. reglugerðar nr. 245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt. Um er að ræða mat á tekjum í búrekstri, hvort sem um er að ræða einstaklingsrekstur eða rekstur lögaðila sem færa ber á rekstrarreikning land­búnaðar­skýrslu rekstrarársins 2010.

Búsafurðir til heimanota og aðra endurgjaldslausa afhendingu þeirra til eigenda, starfs­manna og skylduliðs þeirra skal telja til rekstrartekna á rekstrarreikningi land­búnaðar­skýrslu. Tekur skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa, sjávarafla og afla eldisstöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu til óskylds aðila. Séu afurðir þessar afhentar á lægra verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og matsverðinu talinn til rekstrartekna hjá búinu.

Skattmat á heimaafnotum búsafurða o.fl. vegna tekjuársins 2010 er sem hér segir:

  

kr.       

Mjólk

 

71 hver lítri

Egg

 

408 hvert kg

Kartöflur

 

48 hvert kg

Rófur

 

96 hvert kg

Lambakjöt

 

470 hvert kg

Kjöt af veturgömlu fé

 

315 hvert kg

Annað kjöt af sauðfé

 

107 hvert kg

Ungnautakjöt

 

467 hvert kg

Annað kjöt af nautgripum

 

296 hvert kg

Folaldakjöt

 

240 hvert kg

Annað kjöt af hrossum

 

127 hvert kg

Grísakjöt

 

288 hvert kg

Annað svínakjöt

 

203 hvert kg

Kalkúnar, endur og gæsir

 

407 hvert kg

Annað fuglakjöt

 

320 hvert kg

Fiskur

 

250 hvert kg

Fjármálaráðuneytinu, 30. desember 2009.

F. h. r.
Guðmundur Árnason.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

B deild - Útgáfud.: 31. desember 2009