Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1204/2012

Nr. 1204/2012 17. desember 2012
AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um bústofn til eignar í skattframtali 2013.

Eignamat í árslok.

Samkvæmt 2. tölul. 73. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal telja búpening til eignar með verði er ríkisskattstjóri ákveður til eins árs í senn. Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 213/2001, um skattalega meðferð á bústofnsbreytingu og kaupverði lífdýra í landbúnaði, skal færa bústofn allan í ársbyrjun á bústofnsskýrslu með því verði sem ríkisskattstjóri ákveður sbr. framangreint.

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið eftirfarandi mat á búpeningi í árslok 2012, álagningarárið 2013, vegna bústofnsskýrslu fyrir það álagningarár:

 

kr.    

Mjólkurkýr

108.000

Holdakýr og naut

94.000

Kvígur, 1 1/2 árs og eldri

69.000

Geldneyti

49.000

Kálfar, yngri en 1/2 árs

12.500

Ær og sauðir

7.400

Hrútar

11.800

Gemlingar

6.600

Geitur

3.700

Hross á 14. vetri og eldri

17.000

Hross á 5. – 13. vetri

34.000

Fulltamin reiðhross á 5. – 13. vetri

140.000

Önnur nýtanleg reiðhross

70.000

Verðlaunahross á 5. – 13. vetri

200.000

Kynbótahestar á 5. – 13. vetri

280.000

Verðlaunaðir kynbótahestar á 5. – 13. vetri

380.000

Tryppi á 2. – 4. vetri

11.000

Folöld

8.000

Hænsni, eldri en 6 mánaða

870

Varphænsni 6 mánaða og yngri

550

Kjúklingar

210

Endur

780

Gæsir

1.540

Kalkúnar

2.300

Gyltur

34.000

Geltir

50.000

Grísir

7.500

Kanínur

2.000

Minkar:

Karldýr

6.500

Kvendýr

4.500

Hvolpar

0

Refir:

Karldýr og kvendýr

6.000

Hvolpar

0

Önnur ótilgreind dýr nýtt í rekstri

3.500

Reykjavík, 17. desember 2012.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 31. desember 2012