Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 688/2008

Nr. 688/2008 9. júlí 2008
AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi við Reykjahvol, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 4. júní 2008 í samræmi við 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt breytingu á „deiliskipulagi frá Reykjalundarvegi að Húsadal". Skipulagsbreytingin felst m.a. í minniháttar breytingum á legu götunnar Reykjahvols, niðurfellingu stígs sunnan Sunnuhvols og því að reiðleið eftir Reykjahvoli er skilgreind sem reiðleið til bráðabirgða.

Deiliskipulagsbreyting þessi hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F. h. Mosfellsbæjar, 9. júlí 2008,

Finnur Birgisson, skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 11. júlí 2008