Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1154/2010

Nr. 1154/2010 31. desember 2010
HEIÐURSMERKI FÁLKAORÐUNNAR

Eftirtaldir menn voru sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á árinu 2010:

I. Íslenskir ríkisborgarar.

1. janúar 2010:

Áshildur Haraldsdóttir tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenskrar tónlistar.

Einar Kárason rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir ritstörf og framlag til íslenskra bókmennta.

Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu löggæslu og félagsmála.

Helgi Seljan, fyrrverandi alþingismaður, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á opinberum vettvangi og í þágu bindindis- og velferðarmála.

Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur, Reykjavík, riddarakross fyrir rannsóknir í fiskifræði og hafvísindum.

Högna Sigurðardóttir arkitekt, Frakklandi, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar húsagerðarlistar.

Pétur Ágústsson, framkvæmdastjóri og skipstjóri, Stykkishólmi, riddarakross fyrir frumkvæði í ferðaþjónustu.

Ragnhildur Guðrún Guðmundsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, riddarakross fyrir störf í þágu samfélagshjálpar.

Sigríður Jóna Kristjánsdóttir útskurðarmeistari, Grund II, Flóahreppi, riddarakross fyrir framlag til þjóðlegrar listar.

Sólveig Guðlaugsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur á Barna- og unglingageðdeild Landspítala, riddarakross fyrir framlag til heilbrigðismála og umönnunar ungmenna.

3. mars 2010:

Þórir Gunnarsson aðalræðismaður, Tékklandi, riddarakross fyrir störf í þágu Íslands og íslenskrar menningar á erlendum vettvangi.

17. júní 2010:

Edda Erlendsdóttir píanóleikari, Frakklandi, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenskrar tónlistar.

Gísli Örn Garðarsson leikstjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar leiklistar.

Guðrún Guðmundsdóttir húsmóðir, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag á sviði útsaums og þjóðlegrar menningar.

Guðrún Nordal forstöðumaður, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu íslenskra fræða.

Helena Eyjólfsdóttir söngkona, Akureyri, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar.

Hjalti Pálsson, ritstjóri og fyrrverandi héraðsskjalavörður, Skagafirði, riddarakross fyrir framlag til héraðssögu, fræða og menningar.

Jón Ásbergsson framkvæmdastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu íslensks atvinnulífs og útflutnings.

Jónas Þórir Þórisson forstöðumaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til líknarmála og hjálparstarfs.

Kristbjörn Þór Árnason skipstjóri, Húsavík, riddarakross fyrir sjósókn og störf í sjávarútvegi.

Magðalena Sigríður Hallsdóttir, fyrrverandi formaður Kvenfélags Sjúkrahúss Siglufjarðar, Siglufirði, riddarakross fyrir störf í þágu aldraðra og sjúkra.

Marga Ingeborg Thome prófessor, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir störf í þágu heilbrigðismenntunar og rannsókna.

Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt, Reykjavík, riddarakross fyrir frumherjastörf við skipulag og mótun umhverfis.

30. nóvember 2010:

Ólafur Garðar Einarsson, fv. formaður orðunefndar, Garðabæ, stórriddarakross með stjörnu.

Ingibjörg Benediktsdóttir, forseti Hæstaréttar Íslands, Reykjavík, stórriddarakross.

II. Erlendir ríkisborgarar.

7. janúar 2010:

Povl Riis læknir, Danmörku, riddarakross fyrir framlag til menningarmála.

30. apríl 2010:

Yokei Sasakawa, stjórnarformaður Sasakawa stofnunarinnar, Japan, stórriddarakross með stjörnu fyrir framlag til menningarmála.

10. júní 2010:

Toomas Hendrik Ilves forseti, Eistlandi, stórkross.

10. ágúst 2010:

Margit Fredrikke Tveiten sendiherra, Noregi, stórriddarakross með stjörnu.

26. október 2010:

Hannu Hämäläinen sendiherra, Finnlandi, stórriddarakross með stjörnu.

B deild - Útgáfud.: 19. janúar 2011